Réttur


Réttur - 01.01.1947, Page 32

Réttur - 01.01.1947, Page 32
32 RÉTT UR vísindamaðurinn á sviði frumeinda-eðlisfræðinnar, hefur jafnan nefnt sig lærisvein Langevins og haft á honum mestu mætur. Hann flutti ræðu um kennara sinn við jarðarförina — og mun hún vera með því albezta í vís- inda-bókmenntum frönskum. En á orðið vísinda- eða vísindalegur við í þessu sam- bandi? Það var brennandi pólitísk sannfæring, kommún- istiskar skoðanir, er tengdu Joliot-Curie við franska al- þýðu. Og hann minnti hlustendur sína. á það, að komm- únistinn og vísindamaðurinn Paul Langevin, hefði ekki litið á vísindin, sem glæsilega íþrótt hugans eingöngu, „heldur sem mikilvirkt tæki mannkyninu til frelsis og aukins þroska, tæki til þess að skapa meira réttlæti og manngæzku. Paul Langevin gegndi tvennskonar hlut- verki. Hann var í senn mikill vísindamaður og góður samborgari. Hann leitaðist við að auka þekkingu okkar á heiminum og jafnframt að skapa nýjan heim, þar sem réttlætið réði ríkjum. Hann var feikna fjölfróður og fjölhæfur og sérstaklega skýr og nákvæmur í dómum sínum og ályktunum. Það voru þessir ágætu eiginleikar, sem gerðu honum fært að skýra og reltja félagsleg við- fangsefni svo rækilega, sem raun varð á — og snúast við þeim á þann hátt, að við dáumst að. Langevin sóttist ekki eftir því að tilheyra einhverju úrvalsliði vísinda- manna, sem slitið væri úr öllum tengslum við atburði líðandi stundar. Hann var einn í félagsheild starfandi manna, og því var það, að hann gaf sig að félagslegum vandamálum." Þetta er svarið við þeirri spurningu, er vér vörpuðum fram í upphafi greinarinnar. Þetta er skýringin á því, að háskólaborgarar og félagsbundinn verkalýður, sendi- nefndir bænda og frægustu nútíma-listamenn og skáld gengu þarna saman fylktu liði á eftir kistu hans. Mér hlotnaðist það hryggilega hlutskipti, að vera sá síðasti, er heimsótti hann — það var nokkrum klukku-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.