Réttur - 01.06.1947, Síða 14
86
RÉTTU R
Þá brýzt út það eySandi afl í þjáðum hóp,
sem örvæntingp og hatur megna að skapa.
Og gullkálfsins liof, sem að guðlaus ágirnd skóp,
til grunna munu þá í einu hrapa.“
PÁLL JÓNSSON (Árdal).
Það er ekki „blóðrauður byltingarsinni", sem yrkir
þetta róttæka ádeilukvæði á ameríska auðvaldið, sem
hér er birt. Það er „borgaralega hugsandi" íslenzkt
Ijóðskáld, sem gefur tilfinningum sínum og þjóðar
sinnar form í þessu kvæði: „Auðvaldið" 1894. Það er
tilfinning hinnar fátæku íslenzku þjóðar, sem birtist í
þessum stef jum, svo harmþrungnum og 'heitum yfir frétt-
um þeim, sem henni berast af ástandinu í stórborgum
Ameríku. Og út úr þessari fordæmingu á vesturheimska
auðvaldinu og öðrum jafn vægðarlausum síðar hjá enn
stærri skáldum, skín siðferðisleg og andleg yfirburðatil-
finning íslenzku menntaþjóðarinnar, — þjóðarinnar, sem
í allri eymd sinni og niðurlægingu tókst þó alltaf að varð-
veita rétt mat á fegurstu verðmætum lífsins, — gagnvart
hinu hrokafulla peningavaldi, sem þekkti ekkert annað
verðmæti í lífinu en dollarann og drottinvaldið, sem hon-
um átti að fylgja.
Það voru fréttimar, sem Matthías Jochumsson flutti
heim af ferð sinni til Chicago á heimssýninguna 1893, sem
mun hafa gefið Páli Jónssyni efnið í hið ramma ádeilu-
kvæði sitt. Páll var þá ritstjóri blaðsins „Stefnir" á Ak-
ureyri og 1894 ritar Matthías greinaflokk í það blað, er
hann nefnir „Ástandið í Bandaríkjunum“.
Fyrsti kafli ritgerðarinnar ber undirfyrirsögnina, „Óró-
inn í Chicago" og birtist í 21. tbl. Þar segir Matthías
fyrst frá bókum Mr. Stead: „Ef Kristur kæmi til Chicagó-
ar“ og síðara ritinu „Chicago to day“ (Chicago í dag).
Segir Matthías svo orðrétt um síðari bókina: