Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 55
KÉTTUR
127
kvæmdastjórar auðdrotnanna í undirbúningi heimstyrj-
aldar, sem á að gera allan hnöttinn að einu amerísku
arðránssvæði, — er Island og öll þess menning aðeins
þægilegt, ósökkvandi i lugvélamóðurskip og sprengju-
fleygastöð. Þeim er sama 'hvort íslenzk þjóð lifir eða
deyr. Þeim er sama þótt þessi hólmi verði óbyggilegur
um áratugi og eftir lifi af þjóð vorri aðeins úrkynjaðir
einstaklingar eftir geislavirkanir kjarnorkustríðs.# Pyrir
þá hefur þjóðmenning fslands aldrei verið til, enginn
Jónas Hallgrímsson ort, enginn Jón Sigurðsson barizt,
enginn Jón Arason dáið.’* ** Fyrir þá er líf 135 þúsunda
á þessari ey jafn einskisvirði og líf jafnmargra japanskra
manna, kvenna og barna, sem þeir fórnuðu á einum degi
sem tilraunadýrum fyrir nýjustu drápstæki sín.
Vér íslendingar verðum sjálfir að tryggja tilveru vora,
ef vér ætlum ekki að láta leiða oss sem lamb til slátrunar.
Vér verðum sjálfir að gera tilraun til þess að afstýra
þeim mesta voða, sem þjóð vorri hefur nokkru sinni
verið búinn. Vér verðum að gera allt, sem í voru
valdi stendur. Og vér erum ekki einir. Það eru tugir og
'hundruð milljóna manna í veröldinni, Evrópu sem Amer-
íku, sem heldur ekki vilja láta hafa sig sem peð eða fórn-
arlamb í gereyðingarstyrjöld, sem aðeins gæti útþurrkað
* Áhrif kjarnorkusprengjanna haldast lengi í umhverfinu, sem
þeim er varpað í, og eyðileggja þá, sem þar lifa ,gera þorra fóiks
að fávitum eða meira eða minna vansköpuðum verum, þar sem
geislarnir skemma erfðaeiginleika þá, sem flytjast eiga frá kynj
til kyns.
** Og það, sem þeirrar eigin þjóðar beztu menn hafa gert ir.eta
þeir ekki heldur. 1 þeirra augum er tötrum klæddur her George
Washingtons í Valley Forge fyrirlitlegur skæruliðahópur, mannrétt-
indayfirlýsing amerísku stjórnarskrárinnar hættulegt byltingaplagg
og þjóðfélagslegar umbætur F. D. Roosevelts rauður kommúnismi.