Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 25
RÉTTUR
er á skálmöld hróka og peða,
á svo hugum-háan son“.
97
III.
Amerískt hervald fær fangstað
á íslenzkri grund
Nú er hins vegar afstaða íslands til Bandaríkjanna
ekki lengur orðið bókmenntalegt, andlegt eða siðferði-
legt vandamál. Nú, 1948, er spurningin um álit íslenzku
þjóðarinnar á, og afstaða hennar til framferðis amer-
íska auðvaldsins gagnvart henni sjálfri orðin það, sem
þjóðmenning vor, frelsi vort og ef til vill sjálf tilvera
þjóðar vorrar veltur á.
★
Hernám Breta á Islandi 10. maí 1940 gerist gegn mót-
mælum íslenzku þjóðarinnar og íslenzkra stjórnarvalda.
Það er enginn réttargrundvöllur til fyrir því hernámi.
Það er ofbeldi, sem þjóðin fékk ei rönd við reist. — Það
verðum vér Islendingar ætíð að muna, því það hernám
er undirstaða alls þess, sem síðan hefur gerst, og svipt
oss íslendingana að nokkru leyti yfirráðum yfir landi
voru og stofnað sjálfstæði voru í hættu.
Á grundvelli hernámsins 10. maí 1940 er svo knúin
fram ,,hervernd“ Bandaríkjanna 9. júlí 1941.
Það er nauðsynlegt að gera sér Ijóst, hvernig sú her-
vernd er til komin, því orsakirnar eru vafalaust aðrar
en látið var líta út fyrir.
Sendiherra Breta á Islandi er látinn skrifa íslenzku
ríkisstjórninni að Bretar verði að flytja her sinn burt
héðan, þess vegna verði Isiand að biðja Bandaríkin um
vernd. — Raunverulega er aðferðin sú að íslenzku rík-