Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 23
RÉTTUR
95
úthrópaða og ofsótta ,,bolsjevikka“ og Jesú frá Na.za-
ret:
„Sonur Mannsins, sjáðu manninn!
Sjálfur varstu leikinn þannin.
Hann hefur friðlaus, fyrr og nú,
aumkvað tárum sömu sorgar,
sinnar þjóðar höfuðborgar
afhöfðanir, eins og þú!
Setinn um og svefns einmani,
sveizt með þér í Getsemane,
fyrir sigri, í sömu trú —
þinna vegna, þungir draumar
þjáðu konu Pílatusar,
kvíði um mál þitt, Mannsins son —
samvizkan í þámi þusar,
þessara háu í Washington:
Fyrir-hefnda hugboðs-straumar."
En samvizka þekktist ekki hiá þeim háu í Washington.
Ríkustu menn veraldarinnar höfðu að vísu nafn Krists á
vörunum, en hugur þeirra beindist að því einu að tortíma
öllu, sem þeir héldu að gæti dregið úr gróða þeirra. Tæki
þeirra til slíks tóku ,,framförum“. Fyrstu píslarvotta
frelsisins hengdu þeir. Á 20. öldinni þótti rafmagnsstóll-
inn handa saklausum mönnum betur hæfa amerískri
tækni. Og nú ógna þeir öllu mannkyni með tortímingu
kjarnorkustyrjaldar, ef það vilji ekki lúta lítilsigldustu
Mammonsþrælum, sem jörðin hefur séð: mönnum af tagi
Morgans og Rockefellers.
1920 voru tveir ítalskir verkamenn teknir fastir í Banda-
ríkjunum, ákærðir fyrir morð. Þeir hétu Sacco og Van-
zetti. Þeir voru báðir róttækir verkalýðssinnar, en báðir
saklausir af því, sem þeir voru ákærðir fyrir. Þeir voru
báðir dæmdir til dauða. Amerísk réttvísi spyr aðeins um
skoðanir, ekki um sannanir eða sök. En sakleysi þeirra