Réttur - 01.06.1947, Page 26
98
RÉTTUR
isstjórninni eru settir kostir 24. júní 1941. Hún varð að
gera samninginn á eimrrn sólarhring og Alþingi sam-
þykkti hann 9. júlí, meðan ameríski herinn steig á land.
Gagnvart Islendingum var samningurinn nauðungar-
samningur. Þess vegna greiddu þingmenn Sósíalista-
flokksins atkvæði gegn honum og ýmsir aðrir þingmenn
gerðu þá grein fyrir atkvæði sínu, að þeir samþykktu
hann tilneyddir.*
* Brynjólfur Bjarnason gerði m. a. þessa grein fyrir afstöðu
Sósíalistaflokksins í þingræðu 9. júlí:
„Við stöndum nú augliti til auglitis við orðinn hlut. Þar fáum
við engu um þokað. Við getum aðeins mótmælt, og það munum
við þm. Sósíalistaflokksins gera, og þau mótmæli hljóta jafnframt
að verða skoðuð sem vantraust á ríkisstjórnina.
Samningur sá, sem íslenzka ríkisstjórnin hefur gert við stjórn
Bandaríkjanna, er gerður í fullu heimildarleysi og umboðslaust
frá þjóðinni. Engin ríkisstjórn getur gert ráðstafanir, sem ákvarða
örlög íbúa landsins nú og i framtíðinni, án þess að spyrja þing
og þjóð.
Þetta skref, sem nú hefur verið stigið, er áreiðanlega örlaga-
ríkasta skrefið, sem stigið hefur verið i utanríkismálum Islands,
síðan landið fékk innlenda stjórn. En sú stjórn, sem nú fer með
völd á Islandi, er ekki lögleg stjórn og hefur ekki heimild til þess
að gera neitt í nafni þjóðarinnar. Og þvi miður er þessi hv. sam-
kunda jafn ólögleg og jafn umboðslaus frá þjóðinni og ríkis-
stjórnin. Ég álít nauðsynlegt að leggja áherzlu á þessa hlið máls-
ins, enda þó að við séum vanmáttugir og verðum að sætta okkur
við staðreyndirnar.
Islenzka þjóðin hefur ekki afsalað sér neinum réttindum og
ekki heldur lýst sig reiðubúna til þess að fela Bandaríkjunum
vernd íslands. Slík yfirlýsing er með öllu persónulega á ábyrgð
þeirra ráðherra, sem nú fara með völd í landinu."
Sig. Hlíðar sagði í þingræðu um málið: „Mun ekki verða kom-
izt hjá að gera þennan samning við Bandaríkin, því að hnífurinn