Réttur - 01.06.1947, Page 32
104
RÉTTUR
strandað á mótspyrnu hins íslenzka verkalýðs og fulltrúa
hans í ríkisstjórninni, Sósíalistaflokknum, sem gerði það
að stjórnarrofsmáli, ef látið yrði undan landakröfum
Ameríkana.
Bandaríkjastjórn sá að nú varð að breyta um bardaga-
aðferð til þess að ná tangarhaldi á íslandi. Það varð að
byrja smátt og auka svo áhrifin og nota það hervald, sem
Bandaríkin nú höfðu þar, til þess að afla sér þess fang-
staðar, er duga skyldi.
Einvaldar Ameríku sendu nú nýjan Hallvarð gullskó
hér til lands, Mr. Cummings að nafni, síðla sumars 1946,
til þess að skipuleggja hina nýju herferð gegn sjálfstæði
íslands. Það sem ekki vannst í einu áhlaupi 1945, skyldi
nú vinna í umsátri og með starfsemi fimmtu herdeildar
innan frá. Hin gamla aðferð með tréhestinn úr Troju-
styrjöldinni gat og komið til greina.
En ofbeldið skyldi þó vera grundvöllurinn, sem allt
byggðist á: Bandaríkjastjórn lét það í veðri vaka að
nauðungarsamningurinn frá 9. júlí 1941, sem íslending-
um þá var fyrirskipaður, væri svo óljós, að Bandaríkin
myndu sitja liér með her áfram, ef ekki væri gerður nýr
samningur um „brottför hersins“, er veitti Bandaríkjun-
um önnur frlðindi og ítök hér. — Með öðrum orðum: Á
grundvelli ofbeldisins: hernámsins 10. maí 1940 var
nauðungarsamningnum 9. júlí 1941 þröngvað upp á ó-
löglegt þing íslendinga og á grundvelli, óljósra atriða
þess ,,samnings“ átti nú að sitja, unz nýr nauðungar-
samningur fengist.
Keflavíkursamningurinn var svo samþykktur á Alþingi
5. október 1946 með 32 atkvæðum gegn 19. — Hinir 32
afsökuðu sig með því að ekki væri hægt að fá ameríska
herinn burtu, nema gera þennan smánarsamning — og
viðurkenndu þannig að einn nauðungarsamningurinn
hefði nú boðið öðrum heim, allt á grundvelli hertöku
landsins 1940. Sósíalistaflokkurinn svaraði þessari afsök-