Réttur - 01.06.1947, Síða 33
RÉTTUR
105
un með því að Island hlyti að kæra Bandaríkjastjórn fyr-
ir sameinuðu þjóðunum, ef hún héldi áfram að hersetja
landið í trássi við samninga og rétt.
Með Keflavíkursamningnum var tréhesturinn með illa
dulklæddum amerískum hermönnum settur inn fyrir
múra íslenzka lýðveldisins. Næst var að finna mennina í
stjórnarstöður á íslandi, er hleyptu ameríska liðinu út úr
kviði tréhestsins, svo þeir gætu leikið lausum hala innan
múranna, og aðra hentuga erindreka til þess að brjóta
fleiri skörð í múra lýðveldisins, draga lokur frá hurðum
þess, eitra og sljóvga hugi landsmanna og veikja svo mót-
stöðukraft þeirra að næsta höfuðárás amerísks auðvalds
á íslenzkt frelsi heppnaðist til fulls.
Hernaðaráætlun ameríska auðvaldsins gegn frelsi Is-
lendinga var í höfuðatriðum þessi:
1. Mynda ríkisstjórn amerískra leppa úr hópi 'hinna 32
til „baráttu gegn kommúnismanum". — Ameríska auð-
valdið áleit eins og hið nazistiska auðvald Þýzkalands,
forgengill þess og fyrirmynd, að heppilegast væri að nota
bolsagrýluna sem yfirvarp til ofsókna gegn hverjum, sem
kynni að halda uppi málstað íslenzks þjóðfrelsis. Öll iand-
ráð yfirstétta yrðu alltaf hægast framin undir yfirskini
„baráttunnar gegn kommúnismanum."
2. Grafa undan lögum og rétti á íslandi, svo Ameríkan-
ar yrðu hér herraþjóð með sérréttindum gagnvart Is-
lendingum, sem skyldu bera byrðarnar. Þannig skyldi
unnið að upplausn lýðveldisins og nýrri undirokun Is-
lendinga.
3. Brjóta niður dómgreind Islendinga og spilla svo sjálf-
stæðistilfinningu þeirra, að slík smáþjóð sem vér dirfð-
umst ekki í næsta skipti, sem ameríska stórveldið færi
fram á undirgefni við það, að standa uppi í hárinu á því
eins og 1945. — Þetta hlutverk forheimskvunar fólksins
var sérstaklega ætlað Morgunblaðinu, sem góð reynsla
var af sem málgagni nazismans á íslandi áður.
8