Réttur - 01.06.1947, Page 34
106
RÉTT UR
4. Láta leppstjórn sína eyðileggja eftir mætti viðskipta-
möguleika Islands við þau lönd, sem áætlunarbúskap hafa
svo Island verði f járhagslega í öngþveiti og háð amer-
íska auðvaldinu og fylgiríkjum þess, er kreppa skellur
yfir.
5. Leiða fátækt yfir Island, þannig að fjöldinn, sem
náð hafði nokkurri velmegun á stríðsárunum, verði rúinn
efnum sínum og rýrð hans lífskjör, — því efnahagslega
sjálfstæð, bjargálna alþýða er afl, sem amerískt auðvald
óttast. En forríkir milljónamæringar á Islandi eru hins
vegar hinir ákjósanlegustu bandamenn amerísks auð-
valds gegn íslenzkri þjóð.
6. Hnekkja verkalýðshreyfingunni á íslandi, því það er
amerísku auðvaldi jafnljóst og þýzka nazismanum var, að
verkalýðshreyfingin er hér sem alstaðar annarsstaðar
brjóstvörn lýðræðis og þjóðfrelsis — og að vegurinn til
einræðis amerísks auðvalds yfir Islandi liggur yfir lík
hennar.
Þessa otefnuskrá ameríska auðvaldsins var hafið að
framkvæma á íslandi með þeirri stjórnarstefnu, er til
valda kom 4. febr. 1947.
IV.
Herferð amerísks auðvalds gegn pólitísku
og efnahagslegu frelsi íslendinga
Það auðvald, sem brotizt hafði til pólitískra valda í
hverri stórborg Ameríku eftir aðra með frekustu fjár-
glæfrum, mútum og spillingu, sem sögur fara af, — kúg-
að og þrælkað verkalýð Ameríku, — brotið frjálsa bænd-
ur Bandaríkjanna undir efnahagslegt ok sitt með ára-
tuga féflettingu, — ofsótt alla frjálshuga forustumenn