Réttur - 01.06.1947, Side 38
110
RÉTT UR
stæðan tollinnflutning“ á fslandi. — Þar með hafði sjálf-
ur dóms- og utanríkismálaráðherra lýðveldisins lýst því
yfir að hann ynni að því að brjóta niður tolllög landsins
fyrir aðra þjóð. Hafði hann beygt embættismenn til þess
að brjóta þessi lög samkvæmt hans túlkun. Hótuðu þeir
þingmenn, er standa vildu á rétti fslendinga, að láta þing-
nefnd yfirheyra viðkomandi embættismenn, til þess að í
ljós kæmi hverjum lögbrotin væru að kenna. Hafði ráð-
herrann áður lýst sig fylgjandi því að málið (þingsálykt-
un Áka Jakobssonar um athugun á framkvæmd Keflavík-
ursamningsins) færi til þingnefndar, en eftir þessar ófar-
ir, sem fádæma eru í þingsögu íslands, björguðu fylgjend-
ur ráðherrans honum frá því að frekar yrði opinberuð
smán hans í bili með því að hindra að þingnefnd fengi að
rannsaka málið. — En lögbrotin halda áfram undir vernd
ríkisstjórnarinnar.
2. Lög um aðflutningsbann á sterku öli. Bandaríkja-
menn hafa flutt hundruð þúsunda flaskna af sterku öli
inn í landið. Slíkur innflutningur er algerlega bannaður í
íslenzkum lögum. Engin undanþága er í samningnum fyr-
ir neinu slíku sem þessu. — Hér er um skýlaust lögbrot
að ræða, raunverulegt smygl, sem tollgæzlan horfir á og
fær ekki að stöðva vegna undirlægjuháttar ríkisstjórn-
arinnar.
3. Lög um áfengisverzlun ríkisins og Iög um Tóbaks-
einkasölu ríkisins. Enginn aðili má flytja inn áfengi og
tóbak til Islands, nema þessir tveir aðiljar. Bandaríltja-
menn geta ekki flutt inn þessar vörur, nerna í gegnum
þessar verzlanir ,og verða að greiða þeim álagningu
þeirra. En tollinn af hvorutveggja eiga þeir að fá endur-
greiddan að svo miklu leyti, sem þeir starfa hér að her-
flutningum til og frá Þýzkalandi, en það gerir raunveru-
lega ca. einn tíundi hluti starfsliðsins. — En framkvæmd-
in á þessum málum er svo sú að Bandaríkjamenn fá
áfengi og tóbak án alls eftirlits, án alls tolls og álagning-