Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 41
RÉTTUH
113
semi og nú er rekin í Ameríku og áður í Þýzkalandi og
kveikti þar Evrópubálið.
Amerískir erindrekar virðast nú eftir reynslu síðasta
árs algerlega ráða þrem dagblöðum á Islandi: Morgun-
blaðinu, Vísi og Alþýðublaðinu, þannig að íslenzk sjón-
armið komast alls ekki að í þeim blöðum, — og ennfrem-
ur að mestu leyti Tímanum, en þó virðist vera hægt að
smygla inn í það blað íslenzkum hugsunarhætti, ef iítið
ber á.
Þessi blöð hamast við að brjála dómgreind Islendinga á
þau mál, sem varða sjálfstæði og varðað geta tilveru þjóð-
arinnar. Þetta reyna þau að gera á þann hátt að básúna
daglega fyrir þjóðinni að öll viðleitni til þess að vernda
sjálfstæði þjóðarinnar eða bæta hag alþýðunnar sé erind-
rekstur fyrir Rússa! Samtímis eru þau svo barmafull af
níði um þá þjóð, til þess að brjála allar hugmyndir ís-
lendinga um hana. Þannig á að reyna að fylkja öllum
Islendingum, sem þessum blöðum trúa, í eina fjandsam-
lega fylkingu gegn Rússum (!!), en f á þá til þess að
gleyma því að hugsa um hag og tilveru Islands, ekki sízt
í því tilfelli, ef til styrjaldar kæmi milli Ameríkana og
Evrópu-þ jóða. *
* Við skulum hugsa okkur til samanburðar um þá sjálfstæðis-
baráttu, sem Islendingar nú eiga í gegn auðvaldi Bandaríkjanna, að
aðstæðurnar í sjálfstæðisbaráttu okkar við Dani á 19. öld hefði
verið þannig að fjórir fimmtu hlutar allra íslenzkra blaða og ann-
arra áhrifatækja á þeim tíma hefðu verið í höndum manna, sem
þrotlaust boðuðu að allir þeir, sem vildu Island óháð Danmörku
væru að vinna fyrir Breta, til þess að koma landinu undir þá, Bret-
ar hefðu síðan verið útmálaðir svipað og Morgunblaðið lýsir Rúss-
um nú og fólkið gert dauðhrætt við að hreyfa sig. Hvernig skyldi
hafa gengið að fylkja þjóðinni saman? — Og það hefði þó verið
hægt að finna rök fyrir slíkri Bretagrýlu, sem engin eru til fyrir
Rússagrýlunni.