Réttur - 01.06.1947, Síða 45
RÉTTUR
117
Vér íslendingar eigum ekki að sjá, þegar höggið er reitt
til þess að rota oss.
Ef til vill hefur aldrei í sögu Islands reynt svo sem nú á
manndóm Islendinga og vit í senn, til þess að standa vörð
um heill síns lands, því aldrei hefur blekkingaherferðin til
þess að villa þá verið neitt svipuð því, er nú gerist.
3. Gera ísland efnahagslega háð auðhringum Banda-
ríkjanna og þjóðarheildina fátæka
Auðvald Bandaríkjanna dreymir nú, eins og auðvald
Þýzkalands áður, um að leggja undir sig 'heiminn. Þegar
auðjöfrarnir amerísku höfðu brotið verkamenn og bænd-
ur þar í landi undir sig, hófst herferð þeirra til að arð-
ræna aðrar þjóðir.
Nú sem stendur kemur þessi efnahagslega ránsherferð
fram í eftirfarandi myndum:
a. Knýja löndin til þess að taka hjá sér dollaralán með
skilmálum, sem gera ríki þessi að amerískum lénum.
b. Hindra frekari þróun stóriðnaðar viðkomandi lands,
til þess að skapa stóriðju Bandaríkjanna sem mesta
heimseinokun.
c. Hindra viðskipti viðkomandi þjóðar við öll sósíalist-
isk lönd.
Auðvald Bandaríkjanna reynir að framkvæma fyrst-
nefnda liðinn með Marshall-áætluninni svonefndu, nota
sér neyð og hungur nokkurra Evrópuþjóða til þess að
láta þær selja frelsi sitt. Eitt af amerísku blöðunum á
Islandi, Vísir, hóf áróður fyrir því að Island tæki doll-
aralán, — en aðrir erindrekar Bandaríkjanna hafa ekki
enn þorað að gangast við þeirri þjónkun.
Ráðstafanir amerísku auðhringanna til þess að stöðva
frekari stóriðjuþróun, jafnvel landa eins og Englands og
Frakklands, hafa verið ótrúlega vægðarlausar. Eng-
lendingar fengu t. d. ekki að kaupa framleiðslutæki í