Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 47
EBTTUR
119
ísland hefur þegar beðið stórtjón af þeim ráðstöfun-
um að heimta dollaragreiðslur af Evrópulöndunum, svo
heildsalarnir geti verzlað við Ameríku fyrir 120 milljón-
ir kr. meðan U. S. A. kaupir af Islandi fyrir 15 millj.
Auðvald Ameríku og svartasta afturhaldið á Islandi
hafa bæði hag af að íslenzk alþýða verði aftur jafn fá-
tæk og þrælkuð sem áður. Efnahagslega sjálfstæð,
bjargálna alþýða er alltaf Þrándur í Götu slíkra yfir-
gangsseggja. Þess vegna er nú afturhaldið á Islandi, það,
sem fastast fylgir ameríska auðvaldinu, að gera. ráð-
stafanir til þess að rýra lífskjör alþýðunnar og ræna
hana eignum sínum, allt undir yfirskini dýrtíðarráð-
stafana.
Þær ráðstafanir eru enn eitt spor í áttina til þess að
koma hér á jafn gífurlegum eignaójöfnuði og í Banda-
ríkjunum. Dreymir marga þá auðmenn, sem áður héldu:
að nazisminn myndi lyfta sér upp, nú um slíka upp-
hefð í skjóli Bandaríkjanna, en stjórnmálamenn þeir,
sem mesta samúð sýndu nazismanum fyrrum, standa nú
fremstir í broddi hinna amerísku erindreka.
Stephan G. Stephansson orti 1914 í „Mammon":
„Þá fæst upphefð Islendinga,
ali þeir upp biljóninga,
þó því fylgi hjarta-helta,
hungurs-þrælkun, manndóms-svelta."
Hann vissi 'hvað milljónamæringavald myndi þýða fyrir
Island. Stjórnmálafulltrúar milljónamæringanna ætla
auðsjáanlega. að reyna að sanna það furðu fljótt, að Step-
hann reyndist þarna sannspár sem oftar. Manndóminn
verða þeir íslendingar, sem gerast málalið amerískra auð-
jöfra, eftir reynslunni, sem þegar er fengin, ekki lengi að
svelta út hjá sér. Þrjú íslenzk blöð eru þegar orðin eins
og þau væru gefin út af blaðahring Hearst, sorapressu