Réttur - 01.06.1947, Page 48
120
EÉTTUE
Ameríku, — og í stað þess að áður fyrr voru blöð íslands
rituð af beztu mönnum þess, — svo nöfn ritstjóranna,
hvort þeir hétu Skúli Thoroddsen, Björn Jónsson, Jón Ól-
afsson, Valdimar Ásmundsson, Þorsteinn Gíslason, Þor-
steinn Erlingsson, eða annað, voru stolt þjóðarinnar, —
þá rita nú borgarablöð Islands menn, sem þjóðin almennt
er farin að fyrirverða sig fyrir.
Um spillingu á smekk, andlegu og siðferðislegu mati
hefur amerísku og íslenzku afturhaldi þegar orðið nokk-
uð ágengt. Þegar svo er komið að Ameríka er sjálf farin
að brenna beztu kvikmyndir sínar eins og „Þrúgur reið-
innar“, þá er vart við því að búast að úrkastið, sem hing-
að flytzt, sé smekkbætandi fyrir þjóð íslendingasagn-
anna. Með þeim andlega aðbúnaði, sem íslenzkt afturhald
veitir æskunni, er heldur ekki von á góðu. Þegar Hótel
Borg og Heimdallarskröll eru orðin aðalathvarf þorrans
af reykvískri æsku, lætur, ,,hjartaheltan“ vart lengi á sér
standa hjá þeim, sem að svo litlu lúta. — En samþykktir
Ungmennafélaga, Æskulýðsfylkingar og annarra æsku-
lýðssamtaka sýna að mótspyrnuhreyfing íslenzkrar æsku
gegn amerískri spillingu vex. — En á þessu sviði er hætta
á ferðum, sem beztu menn landsins einnig sjá og þurfa að
sameinast gegn, því framtíð íslenzks þjóðernis er þarna í
veði.
En hvað „hungursþrælkunina" snertir, þá eiga erind-
rekar ameríska auðvaldsins enn langt eftir áður en henni
verði á komið og þar er við drengi að fást, sem hafa ó-
spillt íslendingseðlið í sér að veita ágengni mótstöðu: ís-
lenzka verkamenn.
Þess vegna mun amerískt auðvald og „íslenzkir" ermd-
rekar þess einbeita baráttu sinni gegn íslenzku verkalýðs-
hreyfingunni. Og hvað baráttuna gegn henni snertir, þá
er vitað að amerísk stjórnarvöld hafa gefið hinum ís-
lenzku fulltrúum sínum skipanir, sem þeir þegar hafa
breytt eftir. Baráttan gegn verkalýðshreyfingunni, háð