Réttur - 01.06.1947, Qupperneq 49
R É T T U R
121
undir yfirskyni „baráttunnar gegn kommúnismanum“ nú
sem fyrr, er þegar í gangi á íslandi, sem annarsstaðar þar
sem amerískum fyrirskipunum er hlýtt. En ríkisstjórmnni
hefur enn ekki sigrað í þeirri baráttu. Þjónustusemin
við útlent vald og fjandskapurinn við íslenzka hagsmuni
er of augljós til þess að slík árás takizt án þess að á móti
verði tekið.
Hinum amerísku yfirboðurum finnst líka leppar sínir
hér of hræddir við verkalýðshreyfingu íslands. Þessvegna
segja sérfræðingar ameríska auðvaldsins um Marshall-
áætlunina að hin lögþvingaða kauplækkun, sem amerísku
flokkarnir samþykktu 15. des. 1947, sé „vægileg löggjöf"
og kref jast „viðbótarráðstafana“ (sbr. Alþýðubl. 5. febr.
1948: sérfræðingur Marshalláætlunarinnar um ísland o.
s. frv.). Lýkur ályktun þessara „sérfræðinga“ með því að
segja að ísland „geti ekki, meðan á viðreisninni stendur,
náð efnahagslegu jafnvægi án þess að skerða lífskjör
þeirra (íbúa sinna) allverulega“! Blað forsætisráðherrans
birtir þessar fyrirskipanir amerísku auðmannanna sem
véfrétt, mótmælalaust, samtímis fréttum um að, þegar
„viðreisninni" sé lokið, 1950, muni ekki lengur þörf fyrir
íslenzkan fisk á ýmsum þeim mörkuðum Vestur-Evrópu,
sem hann nú sé seldur á, m. ö. o. kreppan muni dynja
yfir ísland, sem amerísk leppstjórn hafi einangrað frá
óþrjótandi mörkuðum hinna sósíalistisku landa! Það verð-
ur vart sagt, að hinir amerísku yfirboðarar séu að fara í
launkofa með hvers konar efna'hagslegt ástand þeir ætli
sér að láta leppa sína leiða yfir Island.
★
Það, sem nú hefur verið minnt á, úr stjórnmálasögu
síðasta árs, nægir til þess að sýna að ekki hefur vantað
viljann hjá núverandi ríkisstjórn Islands til þess að vera
leppstjórn amerískra auðmanna á íslandi, skipuleggja
9