Réttur - 01.06.1947, Side 58
130
RÉTTUR
aftur hægt að græða(!!) og aðrir, sem þegar eru farnir
að tala um að bezt sé fyrir ísland að verða ríki í Banda-
ríkjunum, ,,þá fáum við nóga dollara", segja þeir. — Exm
sem komið er þorir enginn opinber fulltrúi auðmanna-
stéttarinnar íslenzku að gangast við þessum hugmynd-
um, en þegar sorpskrif Morgunblaðsins hafa skapað nægi-
legt, andlegt fen í hugum Reykvíkinga, mun ekki frekar
skorta á að taka innlimunarstefnuna upp á arma sína en
herstöðvastefnuna nú.
Ef íslenzka þjóðin sekkur svo djúpt að láta áróðurs-
vélar undir andlegri stjórn manna eins og Morgunblaðs-
ritstjóranna forheimskva sig, þá fremur hún andlegt
sjálfsmorð. Þeim auðmönnum, sem gjarnan vilja leggja
undir sig Island, þó þeir glati sál þess, fyndist ekki mikil
eftirsjón í slíku. En andlegt sjálfsmorð Islendinga þýðir
líkamlegt sjálfsmorð þeirra á eftir, því aðeins ef vér er-
um vakandi og sameinum beztu krafta andlega vakandi
og siðferðilega sterkrar þjóðar vorrar, getum vér vænst
þess að bjarga henni úr 'hættu frelsismissis og tortím-
ingar.
Við skulum minnast þess, að í heitustu ættjarðarljóð-
um ýmissa beztu skálda vorra er beinlínis óskað tortím-
ingar þjóðar og lands, ef þjóðin reynist vesöl og óverðug
vors fagra lands eða lúti harðstjórn framandi ríkja.
Bjarni Thorarensen segir:
En megnirðu’ ei börn þín frá vondu að vara,
og vesöid með ódyggðum þróast þeim hjá,
aftur í legið þitt forna að fara,
föðurland, áttu og hníga í sjá.
Fornólfur biður yfir þjóðina tortímingu, frekar en
hún gangi harðstjórn á hönd, í einhverju fegursta og
hrikalegasta ljóði íslenzkrar frelsisbaráttu, — en eng-
an ættjarðarvin hefur hingað til órað fyrir því, að það