Réttur - 01.06.1947, Page 80
Allur almennmgur verður að styðja
verkalýðshreyfinguna í þeirri
miklu varnarbaráttu, sem
nu
Ræða Brynjólfs Bjarnasonar við umræðumar
um þrælalög ríkisstjómarinnar
Forsætisráðherra hefur lýst því yfir, að höfuðtil-
gangur þessa frumvarps sé að draga úr dýrtíð og verð-
bólgu í landinu og á þeim grundvelli, að tryggja rekstur
atvinnuveganna, 3. kafli frv., sem fjallar um festingu
vísitölunnar, sé þungamiðja þess.
Við skulum athuga frumvarpið út frá þessu sjónar-
miði.
Hvaða ákvæði eru í frumvarpinu, sem tryggja það,
að verðlag í landinu lækki og að dregið verði úr dýr-
tíðinni ?
Logið í lagafmmvarpi
Verðlagsvísitalan 'heldur vitanlega áfram að vera 328,
þótt því sé logið í lagafrumvarpi, að hún sé ekki nema
300 stig. Samkvæmt frumvarpinu er verðlag í landinu
ekki lækkað, heldur er kaupið lækkað með lagaboði.
En þá er að athuga: Hvaða áhrif hefur þetta á verð-