Réttur - 01.06.1947, Side 83
RÉT T U R
155
Hin raunverulega vísitala
mun stórhækka á næstunni
Eins og sjá má af þessu, mun þetta frumvarp ekki
hafa í för með sér lækkun dýrtíðarinnar, heldur veru-
lega hækkun vöruverðs þegar í stað. Og það mun á eng-
an hátt stöðva vöxt dýrtiöar og verðbólgu, heldur þvert
á móti. Verð á erlendum vörum hækkar mjög ört. Og
þegar vöruverð hættir að hafa áhrif á vinnulaun, er
hætt við að verðlagseftirlitið slappist. Og þegar niður-
greiðslur hætta að hafa áhrif á vinnulaun, þá er aug-
ljóst, að úr þeim verður dregið. Það er því alveg víst,
að hin raunverulega vísitala mun stórhækka á næstunni.
Það er ekki ólíklegt, að áður en langt um líður, verði
hún komin upp í 350. En það skiptir ríkisstjórnina engu
máli því að kaupið verður reiknað með vísitölunni 300,
þó hin raunverulega vísitala komist upp í 400. Þetta
þýðir, að með þessu frv. er verið að skapa óbærilega
dýrtíð fyrir allan þorra landsmanna, fyrir alla þá, sem
á launum lifa. Fyrir atvinnurekendur eina er þetta gróði.
Aðeins fyrir þá gæti þetta talizt minnkandi dýrtíð, þ.
e. a. s. ef fólkið léti sér þetta lynda. En að því kem ég
síðar.
Er fiskábyrgð „heimskuleg
bleklíingartilraun ?“
Annar höfuðtilgangurinn á að vera sá, að tryggja
rekstur bátaútgerðarinnar.
Hvernig er það gert í þessu frumvarpi?
Ríkið tryggir bátaútgerðinni sama verð fyrir fiskinn
og í fyrra. Þetta er tekið óbreytt úr frumvarpi Sósíal-
istaflokksins. Sósíalistar 'hafa alla tíð sýnt fram á það
með skýrum rökum, að þetta væri óhjákvæmileg nauð-