Réttur - 01.06.1947, Síða 84
156
RÉTTUR
syn. Stjórnarflokkarnir hafa talið þetta fjarstæðu og
skrifað um það ótal greinar í móðursjúkum tón.
Morgunblaðið skrifar í forustugrein 13. nóvember
síðastliðinn:
„Nei, skrípaleikurinn er of auðsær til þess að ekki
verði séð í gegn um þann svikavef, sem kommúnistar eru
að spinna. Krafan um „fast lágmarksverð fyrir fiskinn,
sem tryggi hlutasjómönnum réttlát kjör“ er einhver
heimskulegasta blekkingatilraun, sem íslenzkur stjórn-
málaflokkur hefur leyft sér að gera. Setning ábyrgðar-
laganna á síðasta þingi breytir þar engu.“
Nú er það komið á daginn, að Sósíalistaflokkurinn er
eini flokkurinn, sem litið hefur raunhæft á þetta mál.
Samtök útgerðarmanna hafa knúið ríkisstjórnina til að
taka upp þessa tillögu Sósíalistaflokksins.
Verðlag á útgerðarvörum
verður ekki lækkað
Þá eru teknar 2 aðrar tillögur frá Sósíalistaflokknum.
Önnur um stuðningslán til þeirra, sem töpuðu á síld-
veiðunum í sumar og hin um lækkun á beituverði. En
greinin um beituna er svo óákveðin, að ómögulegt er að
siá. hvaða gildi hún hefur eða hvort hún 'hefur nokkurt
gildi.
En aðalpúðrið til þess að bjarga bátaútgerðinni á að
vera launalækkunin. Ákvæðið um að reikna vísitöluna
300 stig, hvað sem hún er í raun og veru. Við skulum
athuga, hvað er raunhæft í þessu.
Ef tekið væri fullt tillit til lækkunar allra þeirra
vinnulauna, sem inn í útgerðarkostnaðinn ganga, mundi
þetta kannski nema allt að 5000 kr. á meðal fiskibát
í hæsta lagi. Nú er þetta dreift á marga liði, sem mjög
erfitt er að finna út úr, og um svo smáar upphæðir að
ræða, að þeirra gætir óverulega á mörgum liðum. Það er