Réttur - 01.06.1947, Blaðsíða 85
RÉT T U R
157
því hægt að slá því föstu, að verðlag á útgerðarvörum
verður ekki lækkað teljandi af þessum sökum. Verður
olíuverðið t. d. lækkað? Það væri fróðlegt að fá svar
við því.
Frumvarpið eykur dýrtíðina og gerir
hag útgerðarinnar lakari
Hin raunverulega vísitala, sem útgerðin verður að búa
við verður ekki 300, heldur um 330 stig fyrst um sinn.
Og þessi raunverulega vísitala getur hækkað án tak-
marka. Útgerðin verður að búa við miklu meiri dýrtíð
en s. 1. ár. Sama er að segja um hlutasjómenn. Hið raun-
verulega kaup þeirra lækkar stórum af þessum sökum.
Það er hin furðulegasta blekking og ofugmæli, þao, sem
forsætisráðherra sagði, að samkv. frv. mundi útgerðin
búa við betri kjor en s. 1. ár.
Ég hef nú sýnt fram á með rökum, sem ekki veröa
hrakin, að það er fjarri því, að þessi lög hafi þann til-
gang eða miði að því, sem ríkisstjórnin vill vera láta.
Þau draga ekki úr dýrtíðinni, heldur auka hana. Þau
bæta ekki hag útgerðarinnar, heldur gera hann lakari.
Hin eilífa hugsjón auðvaldsflokkanna
Hvert er þá mark og mið þessa frumvarps? Tilgangur
þess er að koma í framkvæmd þeirri eilífu hugsjón auð-
valdsflokkanna að lækka laun vinnustéttanna í landinu,
gera hina fátæku fátækari til þess að hinir ríku geti orð-
ið ríkari.
Og þessum tilgangi nær frumvarpið, það er að segja
ef ekki væri til nógu öflug verkalýðs'hreyfing í landinu
til þess að brjóta það á bak aftur, ef það yrði annað og
meira en pappírsgagn.
Með núgildandi vísitölu og óbreyttu verðlagi, mundi
kaup launamanna lækka um 81/* %. Nú hef ég sýnt fram