Réttur - 01.06.1947, Síða 86
158
K ÉTTUR
á, að verðlag mundi ekki lækka, heldur hækka. Mun
því láta nærri, að kauplækkunin yrði nú þegar um 10%.
Hins vegar er fjarri því, að kauplækkunin yrði lægri
þegar frá líður, eins og forsætisráðherrann sagði. Þessu
er öfugt farið. Kauplækkunin yrði því meiri, sem lengra
liði frá. Hún gæti vel orðið 15—20%, er frá líður.
Ef miðað er við 8,5% kauplækkun, lækka laun lægst-
launuðu Dagsbrúnarmanna um 78 aura um tímann, eða
grunnlaunin um tæpa 24 aura. Með þessu fer forgörðum
meirihlutinn af tveim síðustu kauphækkunum Dagsbrún-
ar. Það er meira en sú kauphækkun, er járnsmiðir hafa
náð nýlega með tveggja mánaða verkfalli. Dettur mönn-
um í hug, að Dagsbrún hafi haldið út í mánaðarverkfalli
og járnsmiðirnir í tveggja mánaða verkfalli bara rétt
svona að gamni sínu. Þessar stéttir hafa sannarlega ekki
lagt niður vinnu og lagt svo mjög að sér, nema vegna
þess, að það var knýjandi þörf, óhjákvæmileg nauðvöm
gegn pólitík ríkisstjórnarinnar. Og hvílíkur bamaskapur
að halda, að þessar stéttir láti sér þetta lynda.
Dæmi um launalækkanir
nokkurra starfsstétta
Ég skal nú nefna nokkur dæmi um það, hvemig þetta
verkar fyrir hinar ýmsu launastéttir.
Það eru nokkur dæmi um launalækkun á ári vegna
vísitöluskerðingar frumvarpsins: Hér er allsstaðar mið-
að við dagvinnu:
Verkamenn í Reykjavík, Dagsbrúnarm. kr. 1872.00 til kr. 2040.00
Mánaðarkaupsm. í Rvík, Dagsbrúnarm. — 1780.80 — 1948.80
Fagmenn, svo sem trésmiðir, prentarar,
bifv,virkjar, bókbindarar, klæðsk. o. fl. — 2184.00 — 2475.00
Starfsstúlkur á spitölum ............... — 1176.00
Bifreiðastjórar, mánaðarkaupsmenn . . — 2116.80 — 2184.00