Réttur - 01.06.1947, Síða 89
RÉTTUR
161
tap fyrir hina innlendu húsbændur ríkisstjórnarinnar.
Það hefur líka sjálfsagt átt að vera í þjónustu húsbænd-
anna, sem ríkisstjórnin stöðvaði járniðnaðinn í tvo mán-
uði. En sigur járnsmiðanna var alger. Hins vegar bakaði
það þjóðinni milljóna tjón, að ríkisstjórnin hindraði að
samið væri í upphafi um þær kröfur járnsmiðanna, sem
allir töldu að væru réttmætar.
Atvinnurekendur munu ekki græða
á stéttastríði því sem leppstjórnin
hefur stofnað til
Svona hafa nú 'hyggindi ríkisstjómarinnar verið, og
nú hefur hún lagt út í mestu ófæruna. E. t. v. er skýr-
ingin sú að hún hefur farið eftir fyrirskipunum hinna
amerísku húsbænda sinna. En finnst þá íslenzkum mönn-
um hvar í stétt eða flokki, sem þeir standa, ekki nóg
komið. Því það mun ekki líða á löngu áður en atvinnu-
rekendur verða að sanna það, að þeir munu ekki græða
á því stéttastríði, sem þessi ameríska leppstjórn, öðru
nafni „fyrsta stjórn Alþýðuflokksins", hefur stofnað til.
Hvað hefur skeð, sem réttlætir það að stofnað er til
þessara óskapa? Hvaða nauðsyn ber til að hefja svo
ósvífna árás á lífskjör almennings? Fyrir tæpu ári síðan
var nóg atvinna í landinu, miklar framkvæmdir, vax-
andi velmegun, allt líf þjóðarinnar einkenndist af bjart-
sýni og stórhug. Og nú á allt að vera á barmi glötunar-
innar. Hefur hallæri dunið yfir landið? Ónei, það hafa
aðeins orðið stjómarskipti.
Glæsilegir afkomumöguleikar
þjóðarinnar
Hvernig eru svo afkomumöguleikar þjóðarinnar að
öðru leyti.