Réttur - 01.06.1947, Page 90
162
R ÉTTUR
I tíð fráfarandi stjórnar aflaði þjóðin sér fullkomn-
ari og betri framleiðslutækja en hún hefur nokkru sinni
átt. Framleiðslugeta undirstöðuatvinnuveganna var tvö-
földuð. Þessi tæki hafa þegar aflað þjóðinni geysi mik-
illa auðæfa. Fyrstu nýsköpunartogararnir 'hafa þegar
aflað gjaldeyris upp í verðmæti sitt. Á skömmum tíma
munu þeir færa þjóðinni miklu meiri gjaldeyri en út var
lagður fyrir þá. Allar helztu útflutningsvörur lands-
manna hafa stórhækkað á heimsmarkaðinum. Síldar-
lýsið hefur á þessu ári hækkað um 50—100%. Síldarmjöl
yfirleitt um 25%. Mikill hluti hraðfrysta fisksins um
25%. Isfiskssalan er með afbrigðum góð. I fyrra var and-
virði útflutningsins 291 millj. Nú er víst, að hann verð-
ur a. m. k. 350 milljónir* og meiri ef öll vetrarsíldin er
talin með. Gjaldeyristekjur þjóðarinnar í ár fara þannig
fram úr öllum fyrri metum. Þessi árangur hefur náðzt
þrátt fyrir þá frammistöðu ríkisstjórnarinnar í afurða-
sölumálunum, sem fræg er orðin að endemum. Nú fer
verðlagið á matvælum mjög hækkandi um allan heim.
Hefur t. d. hækkað um 40—50% í Bandaríkjunum á
stuttum tíma. Ríkisstjórnin viðurkennir sjálf, að verð
á íslenzkum afurðum fari hækkandi og síðustu sölurnar
séu beztar. Það eru því engar líkur til, að ekki fáist á-
byrgðarverð fyrir fiskinn á næsta ári, nema selt verði
beinlínis fyrir lægra verð en fáanlegt er, og þó einkum
þegar tekið er með í reikninginn að ríkisstjórnin gerir
ráð fyrir í frumvarpinu að verðjafna afurðirnar, en
enginn ágreiningur er um, að á næsta ári mun verða
geysihátt verð á síldarlýsi. Hitt er eðlilegur hlutur, að
eftir það, sem á undan er gengið, vilji útgerðarmenn og
* Um áramót var ekki komið á útflutningsskýrslur nema 290,5
millj., en af framleiðslu ársins var þá ókomið á skýrslur yfir 90
millj. kr. verðmæti. (Freðfiskur, saltfiskur, síldarlýsi og — mjöl,
þorskalýsi o. fl.).