Réttur - 01.06.1947, Side 96
168
R É T T U R
þessari stjórn, heldur líka framtíð lýðræðisins og sjálf-
stæðis þjóðarinnar.
Islenzka þjóðin, allir þeir, sem vinna og framleiða,
þurfa að taka höndum saman til þess að vernda hags-
muni sína og vinna að því að snúið verði af þeirri ó-
heillabraut, sem horfið var að með tilkomu þessarar
ríkisstjórnar. Verkamenn og starfsmenn, bændur og út-
vegsmenn, menntamenn og allt frjálslynt fólk í þessu
landi, þarf að taka höndum saman og láta afturhaldinu
ekki takast að sundra röðum sínum vegna mismunandi
lífsskoðana eða flokkshleypidóma.
Allir þeir, sem vinna þjóðnýt störf
verða að finna leiðir til samstarfs
Allur almenningur þarf að styðja verkalýðshreyfing-
una í þeirri miklu varnarbaráttu, sem hún á nú fyrir
höndum. Því að sú barátta er háð fyrir hagsmunum og
frelsi allrar þjóðarinnar. Við þurfum sameiningu og sam-
starf, ekki sundrungu og ófrið.
Hinar vinnandi stéttir og allir þeir landsmenn, sem
vinna þjóðnýt störf, þurfa að finna leiðir til samstarfs
og til þess að skapa sér sameiginlegan meirihluta á Al-
þingi, þrátt fyrir allt hið smærra og fjarlægara, sem á
milli ber.
Það er skilyrði fyrir því, að hægt sé að hefja að nýju
þá sókn framfaranna og athafnanna fyrir betra lífi
og meiri menningu, sem hafin var á árunum 1944—46.