Réttur - 01.06.1947, Side 102
174
R ÉTTUR
ráðstefnunnar", hið almenna fylgi sem dýrtíðartillögur
sósíalista áttu að fagna með þjóðinni og viðbrögð almenn-
ings, er stjórnin lagði þrælalagafrumvarp sitt fram á
Alþingi.
Upphaflega hugðist stjórnin að úrskurða, að vísitalan
skyldi vera ekki hærri en 250 stig — eins og glöggt kom
fram á stéttaráðstefnunni. Hefði það orðið um 24% kaup-
lækkun. Því næst var hopað í 280 stig og loks í 300.
1 ráði var að banna grunnkaupshækkanir samtímis
lækkun kauplagsvísitölunnar, en þegar til kom þótti það
of áhættusamt ævintýri.
Ríkisstjómin ætlaði ekki að taka ábyrgð á fiskverðinu
til sjómanna og útvegsmanna. Hún neyddist til að fallast
á að ábyrgjast 65 auraverð fyrir kg. eins og sósíalistar
lögðu til.
Það átti að hækka vexti af lánum til útgerðarinnar.
Bankarnir voru að undirbúa slíka vaxtahækkun samtímis
því sem frumvarpið var lagt fram. — Ríkisstjórnin
neyddist til að láta sér lynda að nokkuð var gengið til
móts við tillögur sósíalista í því efni og ákveðið að rekstr-
arlán til útgerðar mættu ekki hækka, heldur skyldu þau
lækka niður í 4%.
Samkvæmt frumv. eins og það var lagt fram var hægt
að taka framlag ríkissjóðs á s. 1. ári vegna fiskábyrgð-
arinnar aftur af verði sjávarfangs til útgerðarmanna og
sjómanna á þessu ári. Ríkisstjórnin neyddist einnig til að
falla frá því.
Samkvæmt lögunum lækkar lífeyrir ekkna og mun-
aðarleysingja um 8,5% miðað við vísitöluna 328. Sama
er að segja um öll önnur framlög samkvæmt alþýðu-
tryggingunum, nema elli og örorkulífeyrir lækkar ekki
nema um 4%, samkvæmt breytingu sem gerð var í þing-
inu. Hér er einnig um nokkurt undanhald að ræða, þó í
litlu sé, fyrir baráttu þingmanna Sósíalistaflokksins, sem
naut óskipts stuðnings almennings.