Réttur - 01.06.1947, Síða 104
Tilkynning fil jeppaeigenda:
Nú höfum við nýja tegund af heyblásurum til afhending-
ar fyrir vorið. Blásarar þessir eru þannig gerðir, að jepp-
arnir geta drifið þá. Blása þeir 12000 kúbikfetum á minútu
við eðlilegan hraða (1250 snúninga), og geta gefið allt að 4
og %" þrýsting. Við munum einnig geta hafið sölu á 18000
kúbikfeta blásurum, fyrir vorið, er kosta 4100.00 kr., en hin-
ir fyrrnefndu kosta kr. 3500.00.
Athugið, að blástursloftið þarf að vera með það miklum
þrýsting, að það fari í gegn um heyið. Þau afköst, sem við
gefum upp, eru miðuð við þann þrýsting.
Kynnið yður gæði hverrar tegundar blásara, áður en þér
takið endanlega ákvörðun um kaup. Athugið, að það bezta
er auðvitað dýrast fyrst í stað.
Sérstakur mótor kostar töluvert fé, og er auk þess oft lítt
fáanlegur. Þið sparið því kaup á mótor og stofnkostnað slíks
heyblásara, er við bjóðum yður, á einu óþurrkasumri, með
því að láta jeppann annast heyblásturinn. Þeir, sem óska
eftir að fá teikningar af loftgöngum í hlöðugólf, eða loft-
göngin fullsmíðuð hjá okkur, verða að senda nákvæma grunn-
flatarteikningu og dýpt hlöðunnar með blásaranum staðsett-
um.
Blásarar þessir verða skilyrðislaust afgreiddir í þeirri röð,
er pantanir berast, og verða látin afgreiðslunúmer. Sérstak-
lega biðjum við félög jeppaeigenda, sem áhuga hafa á þessu,
að setja sig í samband við okkur sem allra fyrst, og koma
þar með í veg fyrir afgreiðsluörðugleika síðar meir. Blásari
í sambandi við jeppa, er ávallt til sýnis hjá okkur. Bændur,
munið að jeppinn er fyrsta vélknúna tækið sem hver bóndi
á að fá sér.
/
AÐALUMBOÐ: HJAL.TI BJÖBNSSON og CO
SÖBUUMBOÐ: H. F. STILLIR
H.f. STILLIR
Laugaveg 168. Sími: 5347