Réttur - 01.08.1950, Side 32
192
RÉTTUR
Kamenka-Dnéprotskaja héraði. Árið 1949 fengust 35 vættir af
hverjum hektara á akri, sem er 83 hektarar að stærð. Annað sam-
yrkjubú í Úkrainu uppskar 37 vættir af hektara á 50 hektara svæði.
Það er því hægt að fá nærri fjórfalda uppskeru miðað við með-
altalið og hér er ekki um að ræða neina óvenjulega uppskeru af
sérstökum tilraunareitum á rannsóknarstöðvum, heldur uppskeru
sem fæst af ökrum á venjulegu samyrkjubúi.
En látum okkur áætla að meðaluppskeran yfir allan heiminn
aukizt tveimur og hálfum sinnum og að ræktað land þrefaldist. Ef
svo væri gæti jörð okkar ekki aðeins fætt 900 milljónir, eins
og Pearson og Harper halda fram, heldur mundi uppskeran nægja
handa 6600 milljónum manna.
Þetta þýðir að jafnvel í dag og án þess að nokkrar nýjar óvæntar
vísindauppgötvanir komi til, er það á valdi mannanna að uppræta
hungrið af jörðinni, enda þótt íbúafjöldinn þrefaldaðist. En það er
hægt að gera meira. Víðáttumikil svæði jarðarinnar eru eyðimerk-
ur, freðmýrar og hitabeltisskógar, en þessi landsvæði gefa ekkert
af sér nú sem stendur. Vissulega er erfiðara að fá uppskeru af
þessum stöðum, en af venjulegu plægðu og ræktuðu landi. En það
er engu að síður hægt.
Við. í okkar landi höfum ráðizt í að græða upp eyðimerkur
Mið-Asíu með góðum árangri. Akuryrkjan hrósar sigri á stöðugt
norðlægari svæðum og er þegar komin norður fyrir heimskauts-
baug. Þetta framtak sovétþjóðanna ætti að vera öðrum þjóðum til
eftirbreytni. Brezka stjórnin hefur veitt tuttugu og fimm milljónir
sterlingspunda til að útbúa tilraunasvæði fyrir stórskotaliðsvopn
í eyðimörk Ástralíu. Ef þessu fé væri varið til að grafa brunna og
veita vatni á landið, þá gæti þessi eyðimörk gefið af sér brauð
og ull.
Og svo eru hitabeltisssvæðin, sem breyta mætti í stórkostleg
gróðurhús undir berum himni, þar sem framleiða mætti handa
öllum heiminum. En hitabeltisskógarnir meðfram Amazonfljóti
eru því nær jafnóbyggðir og Sahara.
Nútíma Malthusar-sinnar þreytast aldrei á að segja okkur að
jörðin sé „ofsetin“. En það þarf ekki nema rétt að líta á kort af