Réttur - 01.08.1950, Blaðsíða 33
RÉTTUR
193
\
Suðurameríku, Afríku eða Asíu til að sjá að það eru ekki nema
rétt jaðrar af þessum meginlöndum, sem heitið geta raektað land.
En jafnvel í Evrópu og Asíu mætti auka þéttbýli og margfalda
íbúafjöldann.
Nazistarnir héldu því fram að þýzku þjóðina skorti „lífsrúm".
Frá fyrstu bernsku var þeirri hugmynd troðið í hvern Þjóðverja
að hann mætti hvergi spara sitt eigið blóð né annarra í baráttunni
fyrir meira „lífsrúmi“. Samt er það staðreynd að Þýzkaland gæti
fætt miklu fleira fólk, en þar býr í dag.
Vísindin hafa leitt í ljós raunverulega ótakmarkaða möguleika
á því að auka frjósemi jarðvegsins. Því meira vatn og næringarefni
sem jurtirnar fá því ákafar vinna þær það verk sitt að breyta
orku sólarinnar í efnaorku korns og ávaxta. Aðeins setur eðli
jurtarinnar sjálfrar viss takmörk, sem þó eru fremur sýndartak-
mörk en raunveruleg, því jafnvel eðli jurtanna er hægt að full-
komna. Allt þetta hafa vísindin sannað. Og það eru fyrst og fremst
rússneskir vísindamenn eins og Timirjasef, Mitsjúrín, Williams
og Lýsenko, sem hafa sannað þetta með rannsóknum sínum. —
Jörðin er geymslustaður fyrir geislaorku. Það er hægt að hag-
nýta þá orku miklu betur en gert er með því að færa akuryrkjuna
yfir stærri svæði og auka uppskeruna.
Vogt og aðrir ný-malthusarsinnar fullyrða að ekki sé hægt
að auka afrakstur jarðarinnar vegna mótstöðu náttúrunnar sjálfr-
ar. Til sönnunar máli sínu benda þeir á Bandaríki Norðurameríku,
þar sem skógar hafa. verið höggnir upp og jarðvegurinn eyddur
með rányrkju. Góð jörð hefur orðið mögur og ófrjó, vatn og vindur
hafa borið til sjávar þriðjunginn af jarðvegi landsins.
Þetta eru að vísu staðreyndir, en ályktanirnar sem af þeim eru
dregnar eru hreinar fjarstæður. Vogt telur upp eftirfarandi söku-
dólga, sem skemmdir gróðurlandsins séu að kenna: Sá fyrsti er
stálöxin, sem hjó skóginn, sá annar var plógurinn. Á þessum
lista er majsinn sem Vogt líkir við sárasóttar sýkilinn. Höfund-
urinn virðist vera mjög ánægður með þessa samlíkingu sína, því
hún er endurtekin á mörgum stöðum.
í stað þess að kenna hagkerfi auðvaldsins um eyðingu landsins,
13