Réttur - 01.08.1950, Side 39
RÉTTUR
199
upp við sig hverju þurfi að breyta, hvað þurfi að skapa að nýju.
Hann mun setja upp sinn efnahagsreikning yfir efni og orku,
vatn og kol, olíu og málm. Og fyrst og fremst mun hann snúa
sér að því að koma í veg fyrir sóun sólskinsins, hins mikla ljóss
og hita sem kemur til jarðar frá sólinni.
Jörðin er eins og firnastór móttakari. Allar hinar grænu jurtir
sem vaxa á jörðinni safna sólarljósi og breyta því í bundna efna-
orku grænna blaða, greina, trjábola, ávaxta og korns.
En það eru ekki aðeins jurtirnar sem soga til sín sólarorku. Það
er sú sama orka sem hitar jarðveginn undir fótum okkar og set-
ur í hreyfingu hafstraumana og loftstraumana í gufuhvolfinu.
Með því að breyta vatni í gufu lyftir sólin árlega 380 þúsund
rúmkílómetrum af vatni, en það er eins mikið vatnsmagn og er
í átta miklum stöðuvötnum á stærð við Baikalvatn.
Öll raforkuver jarðarinnar og allar aðrar vélar, sem framleiða
orku framleiða aðeins sem svarar einum hundrað þúsund-
asta hluta þeirrar orku sem jörðin fær frá sólinni.
Hve mikinn hluta af þessari firna orku hagnýtir maðurinn?
Jurtirnar breyta í efnaorku aðeins 1 til 2 hundraðshlutum af því
sólskini, sem fellur á blöð þeirra. Og ræktaðar jurtir ná aðeins
yfir einn tíunda af þurrlendi jarðar.
Með öðrum orðum, jurtirnar safna fyrir okkur aðeins sem nem-
ur 0,1 til 0,2 hundraðshlutum af þeirri sólarorku, sem nær til
jarðarinnar. Með því að færa út akurlendið til nýrra svæða og
auka uppskeruna mun maðurinn komast yfir þessi takmörk og fá
jurtirnar til að safna meira og meira sólskini fyrir sig. O^enn
á ný mun maðurinn, drottnari jarðarinnar grýpa inn í starf ann-
ars sólskins-neytenda, nefnilega vatnsins.
Eins og risavaxinn mótor rekur sólin vatnið í hringrás frá sjó
til lands og til sjávar aftur.
Til þess að koma í veg fyrir sóun orku í þessari hringrás verð-
um við að stjórna henni skynsamlega og eftir áætlun.
Það verður að hindra vatnið í að ná til hafsins fyr en það hef-
ur innt af hendi allt það starf sem það getur fyrir mennina.
Með því að breyta rennsli fljóta í Afríku væri hægt að veita