Réttur - 01.08.1950, Blaðsíða 72
232
RÉTTUR
framleiðslunnar haft það í för með sér, að vöruskortur og
svartamarkaður hafa færzt mjög í aukana og í stað
„frjálsrar verzlunar" hefur enn verið hert á einokunar-
viðjunum. í kjölfarið siglir atvinnuleysi, svo að mjög tekur
nú að sverfa að í kaupstöðum og kauptúnum landsins.
Þetta er sem sagt árangurinn af bjargráðum „vísind-
anna.“
Þáttur Alþýðusambandsins
1 síðustu Víðsjá er skýrt frá einróma samþykkt verka-
lýðsráðstefnunnar, sem haldin var í marz, á þá leið að sam-
tökin geri sameiginlegar gagnráðstafanir gegn þeirri
kjaraskerðingu, sem felst í gengislækkunarlögunum. Síð-
an leið og beið, en ekkert heyrðist frá stjórn Alþýðusam-
bandsins. Verkalýðsfélögin tóku nú hvert af öðru að kref ja
hana sagna. Loks sendi hún sambandsfélögunum bréf 15.
júní. Þar segir aðeins að hún telji ekki tímabært að hef jast
handa í kaupgjaldsmálunum enda álíti hún að kauphækkun
sé síðasta ráðið, sem grípa beri til. Aðalatriðið sé að vinna
að „vinsamlegri framkvæmd gengislækkunarlaganna".
Samtímis var sent út álit, samið af nefnd, sem stjórn Al-
þýðusambandsins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
höfðu sett til að gera athuganir um áhrif gengislækkunar-
innar á kjör launþega. Nefndarálit þetta var áróður gegn
kauphækkunum, svo að Ólafur Björnsson fann hvöt hjá
sér til að lýsa opinberlega yfir þakklæti sínu við svo á-
gæta „fulltrúa launþegasamtakanna". Það var einróma
dómur st jórnarblaðanna að svona ættu verkalýðssamtök að
vera, og svona ættu þau að verja fé sínu. Þótti nú ekki
vandgert við svo sanngjarna menn.
Mánuði seinna var vísitala júlímánaðar reiknuð út. Var
þá tekið upp það nýmæli að lækka húsaleiguliðinn, ekki
vegna þess að nokkur maður héldi því fram að húsaleiga
hefði lækkað, 'heldur vegna þess að á síðasta Alþingi höfðu