Réttur - 01.08.1953, Page 2
138
RETTUR
urflugvelli og annarsstaðar og þar er herferð óttans skipulögð
og framkvæmd í samráði við ameríska innrásarherinn.
Það er bráðnauðsynlegt að alþýða íslands geri sér fyllilega ljóst
hvað hér er á ferðinni, þótt hún þekki þetta sama fyrirbrigði úr
sögu sinni og lífsbaráttu sem atvinnu- og skoðanakúgun einstakra
atvinnurekenda. Nú er það komið á miklu hærra stig, hafið upp
í annað veldi.
Auðvaldið hefur gert árásir sínar á launakjör alþýðunnar frá
upphafi vega og með allmiklum árangri á síðustu sex árum, þrátt
fyrir harða varnarbaráttu verkalýðsins. Það hefur tekizt að lækka
hin raunverulegu laun verkalýðsins, bæði með skipulögðu at-
vinnuleysi og kerfisbundinni dýrtíð.
Auðvaldið hefur gert heiidarárás á öll lífskjör alþýðunnar. Því
hefur tekizt að fordæma hluta alþýðunnar til óþolandi aðbúnaðar
í húsnæðis- og heilbrigðismálum og leiða þannig beinar hörmungar
yfir stóran hluta verkalýðsins.
Auðvaldið hefur þannig gert skipulagsbundnar árásir á hús-
næði, fæði, menningu og alla hagsmuni alþýðunnar. Og þessum
árásum hefur verið svarað með mótaðgerðum verkalýðsins, verk-
föllum til lífskjarabóta og annarri pólitískri baráttu á sviði kosn-
inga fyrir auknum réttindum og bættum hag.
En með hinni skipulögðu herferð, sem birtist í hagnýtingu ótt-
ans í síðustu Alþingiskosningum, er lagt til atlögu að manngildi
hvers einasta íslendings.
„Röksemdin“ sem auðvaldið beinlínis notaði við kjósendur, var
þessi: Vertu ekki að hugsa um að skapa þér skoðun eða sannfær-
ingu í stjórnmálum. Gerðu þér ljóst, að ef þú ekki kýst auðvaldið,
þá verður byggðarlag þitt lagt í atvinnulega auðn, hús þitt gert
einskisvirði, atvinna þín eyðilögð og þú og börn þín lenda á flæk-
ing sem endar í bröggum Reykjavíkur eða herbúðum Suðurnesja-
Eða, ef menn vilja orða þessa ,,röksemd“ íhaldsins enn skarpar,
þá lítur hún þannig út: Láttu vera að beita hugsun þinni til að
draga ályktanir og breyta samkvæmt þeim. Hættu að vera hugs-
andi maður, en gerztu auðsveipur þræll, sem gerir það, sem sá,
er ræður ríkinu og auðnum, segir þér að gera.