Réttur - 01.08.1953, Side 82
218
RÉTTUR
Hafnarfirði og Isafirði, fyrir Íhaldinu. Framsókn tapaði í
atkvæðamagni og einu þingsæti. Flokkaskiptingin á Alþingi
varð þannig: Sjálfstæðisflokkur 21 (19), Framsóknar-
flokkur 16 (17), Sósíalistaflokkur 7 (9), Alþýðuflokkur
6 (7), Þjóðvarnarflokkur 2.
Hernámsflokkarnir töpuðu allir hlutfallslega borið sam-
an við kosningarnar 1949. Þá fengu þeir 80.5% atkvæða,
en nú 74,5%. En hin vaxandi andstaða gegn hernáminu
nýttist ekki í kosningunum vegna sundrungarstarfsemi
„Þjóðvarnarflokksins". Hvílíkt glæfraspil framboð þess
flokks var, sést bezt á því að aðeins munaði 107 atkvæð-
um að öll atkvæði hans, sem tekin voru frá hernámsand-
stæðingum, ónýttust.
Samfylkingartilboð.
Ályktun Sósíalistaflokksins af úrslitum kosninganna var
sú, að afturhaldið hef ði haldið velli og fengið miklu sterkari
aðstöðu á Alþingi en efni stóðu til, vegna sundrungar vinstri
aflanna. Þessvegna væri veigamesta verkefnið að sameina
þessi öfl, binda endi á sundrunguna í verkalýðshreyfing-
unni og í þjóðfrelsisbaráttunni.
18. júlí sendi flokkurinn miðstjórn Alþýðuflokksins bréf,
þar sem farið er fram á að flokkarnir ræðist við um sam-
eiginlega baráttu fyrir hagsmunum verkalýðsins og allrar
alþýðu, bæði í verkalýðssamtökunum og á stjórnmálasvið-
inu. Alþýðuflokkurinn svarði engu lengi vel. En seint í
ágúst tilkynnti Alþýðublaðið loks að flokkur þess myndi
taka bréf Sósíalistaflokksins til vandlegrar athugunar og
myndi það verða rætt í flokksfélögunum með haustinu.
Enginn efi er á því, að mjög var lagt að flokksstjórninni af
hálfu óbreyttra Alþýðuflokksmanna, að gefa jákvætt svar
við tilboði Sósíalistaflokksins. — En þegar fram á haustið
kom barst svarið, án þess að málið væri rætt í nokkru
flokksfélagi. Það var alger neitun með svipuðum röksemd-
um og í formannstíð Stefáns Jóhanns. Er sýnilegt að