Réttur - 01.06.1962, Qupperneq 5
R É T T U R
117
utanríkisverzluninni og þjóðnýtingu tryggingarfélaga, olíuhringa og
nokkurra slikra stórgróðafélaga, sem arðsjúga otvinnulifið.
Verkalýður íslands þarf að sýna það að hann er ákveðinn í að
halda kauphækkun þeirri, sem hann nú knúði fram, — og auka við
frá ári til árs. En þá verður liann að auka svo vald sitt á stjórnmála-
sviðinu að burgeisastéttin megni ekki að beita ríkisvaldinu til að
rœna hann kaupliœkkununum. Og það þarf hann og aðrir launþegar
að gera með því að fylkja sér saman í Alþýðusambandskosningun-
um í haust og Alþingiskosningunum að ári.
N EISTAR
„Sjálfur er ég allt illt: United Farmers of Alberta félagi, Non-Partizan, Soci-
alisti, Bolsheviki og „óheiðarlegur“.“
St. G. í bréfi til Guttorms J. Guttormssonar, 5. apríl 1919.
„Og sleitulaus elja hins einfalda manns
í annríki fábreyttra daga,
hinn græðandi varmi í handtökum hans,
jafn heilnæmur afdal sem skaga,
hið þögula lífsstríð án frægðar og fjár
í forsælu réttar og laga,
hin dauðtrygga varðstaða ár eítir ár
— er ókunna hermannsins saga.“
Jóhanncs úr Kötlum:
Ur „Þegnum þagnarinnar" í „Hrímhvíta móðir“.
„ViS liöfum endurskapað Vestur-Þýzkaland efnahagslega, en 80% af leiðtog-
unum eru fyrrverandi nazistar, þó þcir aldrei viðurkenni það ....“
Frú Eleanor Roosevelt, ekkja F. D. Uoosevelt Bandaríkja-
forseta.