Réttur


Réttur - 01.06.1962, Side 28

Réttur - 01.06.1962, Side 28
EINAR OLGEIRSSON : Yegin — og léttvæg fundin Islenzk burgeisastétt hefur nú ráðið landinu alein í þrjú ár, síðan í árslok 1958 að hún hóf Alþýðuflokkinn til ríkisstjórnarvalda sem skjaldsvein sinn til þess að fremja fyrstu ránin og samningsrofin gagnvart verkalýðnum með lögbanni vísitölunnar 1. febr. 1959 og lækkun kaupsins um 10% þar með. Síðan hefur Alþýðuflokkurinn verið henni sá skjöldur, er hún hefur beitt í alræði sínu, með þeim afleiðingum að skjöldur sá var allmjög sundur höggvinn í síðustu kosningahríð. Islenzk burgeisastétt liefur að vísu vegna eignarhalds síns eða umráðaréttar yfir atvinnutækjunum verið valdastétt þjóðarinnar þessa öld mestalla. Þjóðfélag vort hefur í grundvallar atriðum verið auðvaldsskipulag með þeim ummerkjum, er nýlendustigið gamla hafði á það sett. En burgeisastéttin hefur ekki ráðið ríkisstjórn alein, nema með köflum. Bændastéttin og verkalýðurinn hafa um nokkur skeið haft viss áhrif á stjórnarhætti, ekki sízt í krafti þess hve ríkisrekstur og ríkisafskipti, samvinnuhreyfing og verklýðs- hreyfing hafa verið sterk á íslandi, en ógæfan verið sú að bænda- stéttin hefur verið undir forustu borgaralegs flokks, Framsóknar- flokksins, sem auðvaldsáhrif voru mjög sterk í (sbr. olíumál og amerísk umboð S.Í.S og ,,helmingaskipti“), svo sá flokkur fékkst aldrei inn á róttœka alþýðupólitík og of sjaldan inn á þjóðlega stefnu í veigamestu sjálfstæðismálum, eins og þjónusta hans við hernám og Nato sannar. Hins vegar stóð hann með þjóðfrelsisinnum í lýð- veldisstofnun og Landhelgismálinu. Islenzk burgeisastétt sýndi að vísu snemma, hvað hún þráði, þegar hún á þriðja áralug aldarinnar réð alein fram til 1927: „Hvíti slagurinn" í nóvember 1921, — þessi aðför að Ólafi Frið- rikssyni í skjóli Rússagrýlunnar og lyganna, vopnun „hvíta“ liðsins, draumurinn um að setja Jónas frá Hriflu í tugthúsið líka, allt bar þetla voll um þá ofbeldishneigð harðvítugasta arms burgeisastéttar-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.