Réttur


Réttur - 01.06.1962, Page 48

Réttur - 01.06.1962, Page 48
ÁRNI BERGMANN: Yerklýðsfélög og lífskjör í Sovétríkjunum Vinnan. í tillögum um vinnulöggjöf sem birtar voru hér í Sovétríkjunum 1959 og voru síðan samþykktar eftir umræður og nokkrar breyting- ar er grein um verkalýðsfélög sem hljóðar þannig: „Verkalýðsfélög gæta hagsmuna verkamanna og starfsfólks gagn- vart fyrirtækjum og stofnunum, gæta hagsmuna þeirra á sviði fram- leiðslu, almennrar þjónustu, menningarmála. Þau styðja verkamenn og starfsfólk til þátttöku í stjórn framleiðslunnar, skipuleggja sósíal- istíska samkeppni, stjórna framleiðsluráðstefnum, taka þátt í lausn þeirra vandamála sem tengd eru mati vinnunnar, launagreiðslum. Þau stjórna almannatryggingum, sjá um ráðstafanir iil að fullnægja efnalegum og menningarlegum þörfum alþýðunnar. Verkalýðsfélög taka þátl í lagasetningu á sviði vinnumála og lífskjara; þau hafa eftirlit með öryggi á vinnustað, eftirlit með dreifingu húsnæðis og almennri þjónustu við verkafólk.“ Það sést glöggt á þessari upptalningu að verkalýðsfélögum í Sovét- ríkjunum eru ætluð margvísleg hlutverk og að ýmsu leyti ólík því sem við eigum að venjast. I tilfærðri grein er lil dæmis byrjað á því að ræða um þátttöku verkalýðsfélaganna í eflingu framleiðsl- unnar, og í grein þeirri í ofangreindum tillögum sem fjallar um kjarasamninga segir, að þar skuli ekki aðeins kveðið á um skuld- bindingar varðandi kaup og kjör, heldur og skuldbindingar varð- andi framleiðsluna og aukningu hennar. Hins vegar er í þessum lögum hvergi minnzt á það gamla vopn verkalýðsfélaganna í kjara- baráttunni -—■ verkföll. Þegar spurt hefur verið að því, af hverju verkföll séu ekki háð í Sovétríkjunum, þá er því venjulega svarað til að verkföll í sósíal- istísku ríki séu óhugsandi af sömu ástæðum og bóndi gerir ekki

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.