Réttur


Réttur - 01.06.1962, Page 56

Réttur - 01.06.1962, Page 56
168 R É T T U R eða hve marga fermetra þú hefur fyrir. Verksmiðjan reisir barna- heimili — verkalýðsfélagið stjórnar því og úlhlutar plássum, — og sendir börnin upp í sveit á sumrin til að hreinsa í þeim lungun og sálina. Verkalýðsfélagið stjórnar klúbbnum og þeirri margvíslegu starfsemi sem þar fer fram, hvort sem um er að ræða dansiböll, áhugamannaleikhús, listfræðsluskóla alþýðu eða það voðalega fyrir- tæki lúðrasveit. Ollum þessum málum má vitaskuld stjórna vel eða illa, en það eru verkalýðsfélögin sem gera það. Eins og kunnugt er laka almannatryggingar í Sovélríkjunum ekkert af kaupi verkamanna, þær fá allt fé úr ríkissjóði, af ágóða ríkisfyrirtækja. En fyrir nokkru hafa verkalýðsfélögin tekið stjórn almannatrygginga í sínar hendur. Þau leysa nú öll vandamál í sam- bandi við ákvörðun upphæða og úlhlutun sjúkrabóta, slysatrygg- inga, ellilauna, ekknastyrkja, styrkja til föðurlausra barna (slík upptalning gefur engan veginn tæmandi upplýsingar; sjúkrabætur fá menn t. d. ekki aðeins ef þeir veikjast sjálfir, heldur einnig ef einhver meðlimur fjölskyldunnar veikist og þarfnast umönnunar). Þetta er mikið verkefni, og ekki bætir það úr skák að hér undir falla einnig „vegabréf“ í hvíldar- og hressingarheimili, sum ókeypis, önnur með afslætti, enn önnur fullborguð. Öll þessi þjónusta sem nú var nefnd hefur aukizt mikið á síð- ustu árum. Þessi þróun er í samræmi við þá stefnu Kommúnista- flokksins að draga smám saman úr umsvifum og afskiptum ríkis- valdsins en auka veg og vald ýmissa samtaka almennings. Ekki veitir af. En þetta mál hefur einnig aðrar hliðar. Lífskjör verkamanna í Sovétríkjunum ákvarðast ekki af vinnu- launum einum. Hin miklu framlög hins opinbera til ókeypis mennt- unar og heilsuverndar, til barnauppeldis, námsstyrkja, ellilauna, húsnæðismála, hlýtur einnig að reiknast þeim til tekna. Tökum dæmi. Húsaleiga er lág í Sovélríkjunum. Arið 1958 námu útgjöld við rekstur og viðhald íbúðarhúsa í Leningrad 213,5 milljónum rúblna (nýrra), — en borgarbúar greiddu aðeins 27,2 milljónir rúblna í húsaleigu. Afgangurinn er greiddur úr opinberum sjóðum. Arið 1959 kostaði mánaðardvöl eins barns á barnaheimili í Lenín- grad 30 rúblur, hins vegar greiddu foreldrarnir aðeins 5—10,6 rúblur (minnst þeir sem láglaunaðastir eru). 1 Leningrad er barna- leikhús: ef það hefði ált að borga sig árið 1959 hefði meðalverð aðgöngumiða þurft að vera 1,10 rúbl. en í reynd kosluðu miðarnir um 40 kópeka. Þannig má lengi telja. Súkharévskí telur í ofan-

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.