Réttur - 01.06.1962, Page 80
RITFREGNIR
Lcnín: Hcimsvaldastcfnan -
hæsta stig auðvaldsins. —
Hcimskringla, Rvik 1961.
Lenín var ekki aðeins mikill stjórn-
málamaður og flokksleiðtogi, heldur
og fræðimaður og vísinda. Hann til-
einkaði sér fræðikenningar Marx og
Engels og hagnýtti þær í vísindaleg-
um rannsóknum sínum á þjóðfélags-
ástandi samtímans. Niðurstöðurnar
urðu svo grundvöllur hinnar sigur-
sælu baráttu rússneska kommúnista-
flokksins, sem hann háði undir dæg-
urpólitískri forustu þess sama Leníns.
Rit Leníns um heimsvaldastefnuna
markar tímamót í marxískri þjóðfé-
iagsrannsókn, því að þar er í fyrsta
skipti skiigreint á vísindalegan hátt
hið imperíalíska tímaskeið auðvalds-
skipulagsins og sýnt fram á, að sósíal-
isminn einn getur leyst einokunar-
samtökin af hólmi. Jafnframt er það
sannað, að verkalýðurinn tckur ekki
völdin við alheimsbyltingu, heldur
sigrar byltingin fyrst í því landi, þar
sem hlekkur imperíalismans er veik-
astur. Rúmu ári eftir að Lenín lauk
við Heimsvaldastefnuna, varð Októ-
ber-byltingin í Rússlandi. Slíkt var
raunsæi Leníns. — Eyjólfur R. Árna-
son hefur þýtt bókina á lipurt mál;
hún er 183 blaðsíður að iengd og kost-
ar 170 krónur.
Stefnuskró Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna. — Heims-
kringla, Reykjavík 1962.
Komin er út í íslenzkri þýðingu hin
nýja stefnuskrá sovézkra kommúnista,
sem samþykkt var á flokksþingi þeirra
sl. haust. Þetta er þriðja stefnuskráin,
sem kommúnistaflokkur Leníns berst
fyrir. Á öðru flokksþinginu 1903 var
sett það takmark að hrinda keisara-
stjórninni úr sessi, afnema þjóðfélags-
skipan borgaranna og koma á alræði
öreiganna. Þetta tókst 1917. Á átt-
unda flokksþinginu 1919 var skil-
greint það verkefni að framkvæma
sósíalisma. Ilann er nú löngu orðinn
að veruleika í Sovétríkjunum. Nú er
fyrir höndum að skapa þjóðskipulag
kommúnismans, og um það fjallar
þessi nýja stefnuskrá. „I henni er tck-
in til greina reynsla byltingahreyfing-
arinnar um heim allan. Hún túlkar á-
lit flokksins í heild og skilgreinir um
leið aðalverkefni og megináfanga i
framkvæmd kommúnismans." Stefnu-
skráin er 140 blaðsíður að lengd í
hinum íslenzka búningi og kostar 25
krónur.