Réttur


Réttur - 01.09.1962, Blaðsíða 6

Réttur - 01.09.1962, Blaðsíða 6
R E T T U U 198 9. nóvember 1932 urðu svo hin sögulegustu átök, er orðið haía á 20. öldinni í Reykjavík, fyrir utan 30. marz 1949. Þá svarf neyð- in að meir en nokkru sinni fyrr. 1500 atvinnuleysingjar voru skráð- ir í Reykjavík. Þorri verkamanna dró fram lífið með einnar viku atvinnubótavinnu á mánuði. Þá samþykkti bæjarstjórnaríhaldið að lækka kaupið í atvinnubótavinnunni úr 1.50 kr. um tímann niður í 1.00 kr. Var þetta gert samkvæmt sérstakri samþykkt i miðstjórn Sjálfstæðisflokksins og skyldi vera upphaf almennrar launalækkunar. Þá reis verkalýður Reykjavíkur upp. I harðvítugum hardaga við lögreglu og hvítliða, þar sem verkalýðurinn bar hærri hlut, hratt verkalýðshreyfingin hungurárás afturhaldsins. Sjálfstæðis- flokkurinn gafst upp við launalækkunina, er hann sá, að alþýðunni var alvara og ætlaði ekki að láta svelta sig. 1 þessum hardaga stóðu kommúnistar og vinstri Alþýðuflokks- menn saman. 1 hita baráttunnar gegn hróplegu ranglæti skapaðist fyrst sú samfylking, sem síðar, eftir kosningasigur Kommúnista- flokksins 1937, leiddi til einingar þessara afla í Sósialistaflokkn- um 1938. Hér á eftir eru birt tvö kvæði, sem hin harða barátta atvinnu- leysingjanna þetta ár, gaf tilefnið til: „Níundi nóvember“ eftir Jó- hannes úr Kötlum, er birtist í „Hrímhvíta móðir“ 1937, — og „Verkamaður“ eftir Stein Steinar, sem birtist í Rétti 1. hefti 1933 ásamt kvæðinu „Hin hljóðu tár“, og voru þá fyrstu ijóð Steins, er birtust í Rétti. Eins og árið 1932 var ár hinnar sáru neyðar og erfiðu, blóðugu baráttu, — svo varð árið 1942 ár hinna miklu sigra, upphaf tíma- bils mannsæmandi lífskjara, er stóð nokkurt árabil. Arið 1942 uppskar alþýða Islands ávöxtinn af þrotlausri bar- áttu undanfarinna áratuga og fyrst og fremst tímabilsins 1930—41. Undir leiðsögn Sósiaiistaflokksins tókst 1942 að hagnýta góðar aðstæður, fylkja alþýðunni vel saman og einbeita öllum mætti al- þýðunnar að því að ágra, — fyrst að brjóta gerðardómslögin frá janúar 1942 á bak aftur með „skæruhernaðinum“ og síðan að sundra afturhaldsöflunum og sigra þau í tvennum alþingiskosn- ingum. En það er ekki ætlunin að fara að rifja upp sögu þessa árs að sinni, enda oft verið á það minnst, svo mjög sem það mark- aði tímamót í sögu Islands. En það er íslenzkri alþýðu hollt á þeim alvarlegu tímamótum, er hún nú lifir, að rifja upp sögu þessara ára sjálf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.