Réttur


Réttur - 01.09.1962, Blaðsíða 80

Réttur - 01.09.1962, Blaðsíða 80
Bókafregnir L. C. og F. IV. Park: Anatomy oj Big business. — Toronto 1962. Progress Books. Þessi bók, 270 síður, er ýtarleg rannsókn á auðmagninu í Kanada. Er hún mjög fróðleg, ekki sízt hvað snertir rannsóknirnar á tengslum bandaríska og kanadiska auðmagns- ins. Erlend fjárfesting í Kanada var í árslok 1959 20.700 milljónir dollara. I'ar af var bandarískt fjármagn 15.700 milljónir dollara eða 76%, en brezkt 3200 milljónir dollara eða 8%. Hve bratt þessi fjárfesting hefur vaxið sést á því að í árslok 1945 var öll er- lend fjárfesting í Kanada 7100 inillj- ónir dollara, þar af sú bandaríska 4900 millj. rlollara. James Coyne, fyrrverandi aðal- bankustjóri Bank of Canada sagði eftirfarandi (samkv. Financial Post 8. okt. 1960): „Ekkert land í veröldinni, á svip- uðu þróunarstigi og við, hefur nokkru sinni komizt í eins ríkum mæli og við undir erlend fjármagnsyfirráð, ekki komizt í hálfkvisti við okkur, né í fjórða hluta .... 1956 átti erlent fjármagn 48% af verksmiðjuiðnaði vorum og réð 52% af honum. I ýmsum greinum réð er- lent fjármagn yfir 75% til 100% af iðnaðinum. Ilvað olíu og náttúrugas snertir, þá átti erlent fjármagn 65%, en réð yfir 80% .... Ljónsparturinn af þessu fjármagni er bandarískur, vaxandi yfirráð bandarískra félaga einkenna sögu lands vors eftir stríðið." Rit þetta er vísindalega vel unnið. I því eru miklar upplýsingar um öll helztu auðfélög Kanada, svo og um þau auðfélög Bandaríkjanna og Bret- lands, sem þau eru í nánustum tengsl- um við. Er þetta nauðsynlegur fróð- leikur fyrir þá Islendinga, er vilja kynna sér auðhringi jiessara landa, vald þeirra og sambönd. Bókin kostar 2.75 dollara heft og 5.00 dollara bund- in. Fæst bjá Progress Books, 44 Staff- ord Street, Toronto 3, Ontario, Kan- ada. Victor Perlo: Das Reich der Hochjinanz. Dietz Verlag. Ber- lin 1960. Þetta er þýðing á bók frægs, banda- rísks hagfræðings og heitir á frum- málinu: „The Empire of hig finance“. Bók þessi er 475 síður. I henni er samandreginn hinn mesti fróðleikur um alla helztu auðhringa og banka Bandaríkjanna, fjármagn þeirra og gróða, samkeppni jicirra og samstarf, alþjóðleg sambönd þeirra og áhrif, tengsl þeirra við stjórnendur Banda- ríkjanna, stjórnmálaflokkana og áróð- urstækin, — skilgreining á öllum áhrifum jieirra í pólitík Bandaríkj- anna. Sérstaklega er gerð góð grein fyrir auði og áhrifum atiðjöfra ætt- anna: Du Pont, Mellon, Rockefeller og Morgan, þessara voldugu einvalds- konunga nútímans. Það er ölluin íslendingum, er skilja vilja þjóðfélag Bandarikjanna, mikil nauðsyn að kynna sér þessa bók.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.