Réttur


Réttur - 01.09.1962, Síða 27

Réttur - 01.09.1962, Síða 27
u 1; t t u k 219 verksmiðjum, er gleypa rafmagn, sem þarf og lil annarra liluta, er meira gefa í aðra hönd. — En auðvitað þarf ísland einnig að halda fullu sjálfstæði í utanríkisverzlun sinni, til þess að geta þróað sinn eigin innlenda iðnað. lsland getur ekki aðeins framleitt síld og fisk, að gæðum bezlu vöru sinnar tegundar, heldur og líka eftirsóttuslu „luxus“-vörur í stórum stíl: humar, lax, rækjur, ál o. s. frv. — og framleitt það í miklu ríkara mæli en ella með því að taka vísindin meir í þjónustu sína. Það er máske táknrænt fyrir afstöðu mikils hluta horgarastétt- arinnar til íslenzkrar framleiðslu að líklega er áhugi þeirra meiri fyrir að veiða lax sem „sport“ en að hundraðfalda laxframleiðslu og silungsframleiðslu á Islandi til útflutnings, með vísindalegum klakaðferðum. Og má þó vissulega viðhalda laxveiði sem íþrótt og tómstundaiðju Jrótt hið síðarnefnda sé ekki vanrækt. En allir Jressir stórfenglegu möguleikar verða ekki hagnýttir, nema öll þjóðin leggist á eitt og lyfti þessu grettistaki undir forustu stórhuga, alþýðlegrar ríkisstjórnar samkvæmt vel gerðri áætlun. Val þjóðarinnar nú er: Annað hvort tekur hún sjálf upp áætl- unarbúskap og stjórnar hraðri og þjóðheillavænlegri Jiróun atvinnu- lífs síns vitandi vits, sjálfstæð og einráð í landi sínu, — eða hún gerisl leiksoppur erlendra auðrisa, sem henda fjöreggi hennar á milli sín, og framkvæma eða framkvæma ekki þær fyrirætlanir, sem þeir setja án þess að spyrja Islendinga, um atvinnuþróun á lslandi. Gæti þá hvort heldur sem væri orðið ofan á: að ísland yrði gleypt af framandi valdi og Islendingar réðu Jrví ekki meir — eða lsland yrði útkjálkahreppur í stórveldi hins nýþýzka Efnahagsbandalags, sem duglegasta fólkið streymdi burlu frá, af því kjörum almennings væri baldið niðri með harðri hendi og aðeins einblínt á eitt: að jmknast Jreim, sem hagnýta vilja landið sem herstöð og helzt vera lausir við íslenzka ]>jóð á Islandi. 2. Yfirstjórn ríkisins á utanrikisverzluninni mcð hag almennings og sjóltstæði þjóðarinnar tyrir augum. Það stjórnleysi — undir yfirskyni „frelsis“ — sein nú er á utan- ríkisverzlun landsins, miðar að tvennu: annars vegar að láta hag verzlunarauðvaldsins sitja í fyrirrúmi fyrir hag og þörfurn útflutn- ingsins, ]). e. sjávarútvegsins, — hins vegar að láta hagsmuni er- lendra auðhringa, sem selja vilja vörur sínar hingað, sitja í fyrir-

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.