Réttur - 01.09.1962, Síða 35
liETTUR
227
um þróun til kommúnisma í Sovétríkjunum, samfara þeim áröngr-
um, sem náðst hafa á sviði efnahagsmála, vísinda og tækni í lönd-
um sósíalismans og harátta þeirra fyrir friðsamlegri sambúS þjóða,
— allt þetla hefur komiS mörgum Kanadamanni til að Jita upp og
hugsa ráð sitt.
Við skulum ekki fara með ýkjur og segja að verkalýðsstétt Kan-
ada sé á hraðri leið til vinstri. ÞaS er ekki. En það eru sýnileg mörg
merki um fráhvarf frá stuðningi við auðvaldsflokkana, íhaldsflokk-
inn og Frjálslynda flokkinn.
Þetta er kosningaár. Þegar þetta er skrifað, er of snemmt að spá
nokkru um úrslitin. En fólk er farið að spyrja, farið að leita að
annarri stefnu en þeirri ríkjandi. Það er komin hreyfing á hugina,
einkum varðandi frið eða stríð, samskipti Kanada og Bandaríkj-
anna og í þá átt að móta sanna verkalýðsstefnu, sem hægt væri að
ná sem víðtækastri eiíiingu um.
Sjálfstæðismálin í öndvegi.
Arangur umræðna, sem hófust 1940, hefur orðið sá að Kommún-
istaflokkur Kanada liefur mótað skýrt í stefnuskrá sinni viðhorf
sitt til innanlandsmála og stöðu Kanada út á við. ÁSur var spurn-
ingin um leiðina til sósíalisma aðeins rædd með almennu, sérteknu
orðalagi, en í stefnuskránni, sem birt var 1952, voru sjálfstæðismál
Kanada sett í öndvegið. Þetta var nauðsynlegt vegna þeirra breyt-
inga, sem orðið höfðu í afstæðum Kanada, Bretlands og Bandaríkj-
anna eftir seinni heimsstyrjöldina. Þá hafði bandarískt fjármagn,
sem strax 1919 hafði vaxið hinu brezka yfir höfuð, tengst svo kan-
adísku auðmagni, að myndazt hafði nýtt ríkjandi afl í efnahagslífi
landsins.
Kanda hefur í æ ríkara mæli orðið hráefnalind fyrir Bandaríkin
og samtímis innflytjandi iSnaðarvarnings þaðan. Afleiðingin hefur
orðið verri lífskjör þar en í Bandaríkjunum. í stefnuskráruppkast-
inu var bent á hvernig Kanada verður að þola efnahagsleg yfirráð
erlends ríkis, Bandaríkjanna.
Það gerir málin flóknari að Kanada er ekki nýlenda, heldur ann-
ars flokks imperíalistískt ríki. Menn hafa því rætt ýtarlega hver
áhrif stefnuyfirlýsingin um sjálfstæðismál landsins myndi hafa á
baráttuna gegn innlendu einokunarauðvaldi. Myndi barátta gegn
yfirráðum Bandaríkjanna veikja baráttuna gegn þorgarastéttinni í