Réttur


Réttur - 01.09.1962, Page 56

Réttur - 01.09.1962, Page 56
248 RETTUH Það kostar áratuga baráttu efnaminna fólks og stjórnmálasam- taka Jiess að útrýma einni meslu smán stéttajjjóðfélagsins, þeirri að veikum Jjegnum Jjess sé mismunað eftir efnahag. Frá sjónarmiði láglaunafólks eru hlunnindi frá sjúkratryggingakerfi augljóst hags- muna- og öryggismál. J3að greiðir föst afgjöld cil sjúkratrygginga, auk þess sem það greiðir þeim óbeint með sköttum sínum iil hæja og ríkis. A upphafsárum sjúkrasamlags í Reykjavík var hinum efnameiri gert að greiða samlagsgjöld eins og láglaunafólki. Þeir nutu liins vegar ekki hlunninda frá tryggingakerfinu, sem réttilega var skoðað sem vörn hinna efnaminni í veikindum. Þeir sem betur komust af í þjóðfélaginu urðu að greiða læknishjálp réttu verði, þ. e. a. s. sam- kvæmt töxtum læknafélaganna. Svo líða nokkur ár, og hinir efna- meiri fá full réttindi og hlunnindi án þess að greiða meira afgjald til sjúkratrygginganna en láglaunafólk. Fyrir 25 árum hefði Jiað ekki Jjótt neitt réttlæti, að ríkir og fá- tækir sætu við sama borð í þessum efnum. Hér er ágætt dæmi um „réttlæti" þessa íslenzka veikindasósíal- isma: Verkamannshjón með 50 þúsund króna árstekjur greiða eitl þúsund krónur til samlags eða tvö prósent af árslekjum. Hjón með 200 þúsund kr. árstekjur greiða einnig 1.000 kr. eða háljt prósent aj árstekjum. Menn liljóta að spyrja, hvort ekki megi hæta hag tryggingakerfis- ins með Jjví að breyta kjörum hátekjufólks þannig, að jjað greiði afgjöld í hlutfalli við tekjur. Jú, vissulega ætti að breyta Jreim, •— en það fæst ekki fram nú, er fulltrúar hátekjumanna ráða öllu um þessi mál. Afleiðingin af þessu „jafnrétti" ríkra og fátækra verður sú, að kostnaðurinn við læknisjjjónustu leggst með meiri Jjunga á lág- launafólk. Með vel reknu sjúkratryggingakerfi er án efa hægt að skapa sterkan grundvöll undir góða nútima læknisþjónustu. Margir Jiættir hennar verða því aðeins framkvæmdir að félagsleg fjárframlög komi til. Þannig er t. d. um þá tegund læknisjjjónustu, sem felst í barna- vernd, almennu heilbrigðiseftirliti og ráðstöfunum lil að girða fyrir sjúkdóma, svo sem bólusetningu. í þessu sambandi má minna á það ástand, sem skapaðist í skólunum, strax og hætt var að greiða tanneftirlil og tannviðgerðir barna að fullu af opinberu fé.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.