Réttur - 01.01.1966, Blaðsíða 1
RÉTTUR
TÍMARIT U M ÞJÓÐFÉLAGSMÁL
1. HEFTI . 49. ÁRG. . 1966
Ritstjóri: Einar Olgcirsson
Ritnefnd: Ásgeir Bl. Magnússon, Björn Jónsson, Eyjólfur R. Árnason,
Magnús Kjartansson, Páll Bergþórsson, Tryggvi Emilsson, Þórir Daníelsson
Ef Jón Sigurðsson forseti gerði
reikningsskil hinna rændu þjóða
við þær ríku?
Vér íslendingar erum meðlimir Sameinuðu þjóðanna.
Það vandamál, sem þar mun bera hæst, það sem eftir er
þessarar aldar, — við hlið friðarmálsins og óaðskiljanlegt
frá því, — er: hvað gera hinar ríku iðnaðarþjóðir heims til
þess að hæta úr fátækt 2000 milljóna manna, þeirra þjóða
Asíu, Afríku og rómönsku Ameríku, sem hafa verið arð-
rændar og kúgaðar, hafa svelt og svelta ennþá, — en koma
nú fram og heimta eigi aðeins mat sinn og engar refjar,
heldur og réttlæti.
í þessum löndum deyja 30000 hörn á degi hverjum úr
hungri eða sjúkdómum, sem eru afleiðingar hungurs. Bara
í Indlandi deyr eitt harn á hverri mínútu bara úr berklum.
10 milljónir barna þjást af holdsveiki og einungis fimmtung-
ur þeirra fær nokkra læknishjálp. 100 milljónir barna þjást