Réttur - 01.01.1966, Blaðsíða 74
74
RETTUR
inn og Alþýðubandalagið berjast eindregið og h.iklaust gegn innrás
erlends auðhringavalds í íslenzkt atvinnulíf, en Alþýðuflokkurinn
stendur með sérieyfinu til svissneska hringsins. En með því sérleyfi
er verið að gerbreyta íslenzkri efnahagsstefnu þessarar aldar, eigi
aðeins alþýðunnar, heldur og þeirri, er þjóðlegir borgarar fylgdu
t. d. í fossamálinu 1919—23, sbr. afstöðu Jóns Þorlákssonar, Bjarna
frá Vogi og Guðmundar Björnssonar landlæknis. (Sbr. „Rétt“ 1948,
bls. 133—142.)
Þrátt fyrir mótsetningarnar milli verklýðsflokkanna í hagsmuna-
málunum, — ekki sízt í sambandi við efnahagspóLitík núverandi rík-
isstjórnar, — þá nálægir hitt þó flokkana að launþegar beggja heyja
hvað eftir annað stéttabaráttuna hlið við hlið og sífelit verður frið-
samlegra milli þeirra í verklýðssamtökunum. En í þjóðfrelsismálun-
um eru mótsetningarnar hinsvegar djúpstæðastar og erfiðast verður
fyr.ir verkalýðinn í heild að verða þar sammála um hverjar ályktanir
skuli draga af reynslu hálfrar aldar. Það myndi þó gerbreyta afstöð-
unni í þessum málum, ef svo færi að áframhaldandi upplausn Atlants-
hafsbandalagsins leiddi til þess að Norðurlöndin þrjú gengju úr því
og Island nálgaðist á einn eða annan máta hin Norðurlöndin enn
meira. En einmitt um nána samvinnu við Norðurlönd hafa verk-
lýðsflokkarnir lengst af verið sammála, svo sem um Norðurlanda-
ráð, þegar borgaraflokkarnir voru báðir skiptir. Sömuleiðis myndi
það og draga mikið úr ágreiningnum, ef annaðhvort tækist að hindra
innrás alúmínhringsins eða ef ógæfunni yrði ekki afstýrt, að sam-
eiginleg barátta tækist gegn öllum áhrifum auðhringsins eða afskipl-
um af íslenzkum innanlandsmálum, er alþýða sæi hver háski væri
skeður.
En það verður íslenzk verklýðs- og starfsmannastétt að muna að
það er hennar helga hlutverk, — sem vinnandi stétt, meirihluti
þjóðar vorrar, — að standa við lilið beztu og framsýnustu mennta-
manna þjóðarinnar í broddi fylkingar í frelsisbaráttu þessarar þjóð-
ar, um hvað og hvernig sem hún er háð á hverjum tíma. Hún má
aldrei selja frumburðarrétt sinn til forystu þjóðarinnar fyr.ir bauna-
disk, hvort sem á honum eru veraldleg efni eða áróður einn og véla-
brögð.
V. Aflgjafinn í rismesta skóldskaparfímabilinu.
Til þess að heyja almenna hagsmunabaráttu tiltölulega velstæðra
starfandi stétta þarf máske ekki mikla skírskotun með þeim magn-
þrungnu, háfleygu tækjum, sem skáldskapur og önnur list er, en til