Réttur - 01.01.1966, Blaðsíða 96
96
RÉTTUR
tektarverða skilgreiningu á 7. heims-
þinginu og baráttuaðferðum komm-
únista).
Franz Dahlem, miðstjórnarmaður úr
Sósíalistiska Sameiningarflokknum í
Þýzkalandi: „Samstarf mun sigra.“
Witold Jarosinski, ritari miðstjórn-
ar Sameinaða Verkamannaflokksins
pólska: „Eining verkalýðsins og lýð-
ræðisaflanna er voldugt vopn gegn
imperialismanum."
Dolores Ibarurri, (Passionaria), for-
maður spánska Kommúnistaflokksins:
„Sjöunda heimsþing Alþjóðasam-
bands Kommúnista og reynsla Spán-
verja.“ Passionaria, hetja spönsku
byltingarinnar, var eins og fleiri
greinarhöfundar fulltrúi flokks síns á
7. heimsþinginu. Borgarastyrjöldin á
Spáni stóð þá yfir, svo sameiningin
gegn fasismanum var hin brýnasta
einmitt þar. Rekur hún í ræðu sinni
hin dýrmætu reynslu hins spánska
hetjuflokks og 30 ára baráttu við
ofurefli síðan. Er ræða hennar mjög
lærdómsrík.
Encho Staikov, meðlimur fram-
kvæmdanefndar Kommúnistaflokks
Búlgaríu: „Sjöunda heimsþingið og
búlgarski Kommúnistaflokkurinn.“
Vladimir Koucký, ritari Kommún-
istaflokks Tékkóslóvakíu: „Baráttan
fyrir lýðræði er óaðskiljanleg frá bar-
áttunni fyrir sósíalisma."
Claude Lightfoot, einn að leiðtog-
um Kommúnistaflokks Bandaríkj-
anna: „Hindrið stríð, tryggið félags-
legar framfarir."
Fleiri fluttu ræður og er örstuttur
útdráttur úr þeim í þessu hefti, þar
á meðal J. Koplenig, fyrrv. formaður
austurríska Kommúnistaflokksins, E.
Papaioannou, formaður Framfara-
flokks alþýðunnar (AKEL) á Kýpur,
G. P. Fransov, ritstjóri World Marx-
ist Review, Ib Nörlund, meðlimur
framkvæmdanefndar danska Komm-
únistaflokksins o. fl.
Greinar um önnur efni í heftinu eru
helztar:
Z. Meynar: „Vandamál pólitískrar
forystu og nýja efnahagskerfið.“
F. Billoux: „Einingarstefna franska
Kommúnistaflokksins og forsetakosn-
ingarnar."
J. I. Quello og N. Is. Conde: „Bylt-
ingarbaráttan í Dominiku og lær-
dómar hennar."
J. Gunzález: „Byltingarstefna komm
únista í Chile.“
I. Sumar: „Fólkið verður ekki sigr-
að.“ Er þar minnst fimm ára afmælis
Þjóðflokksfylkingarinnar í Suður-
Vietnam.