Réttur - 01.01.1966, Blaðsíða 34
34
RÉTTUR
svissneska alúmínhringinn, og þögnin um þetta atriði er þeim mun
tortryggilegri sem fyrir liggur mikilvæg ný vitneskja.
Hér á landi dvöldust fyrr á þessu ári tveir norskir sérfræðingar,
Kanavin og Devik, og rannsökuðu ísmyndunarvandamál á vatna-
svæði Hvítár og Þjórsár á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þeir gáfu
sérstakan gaum að virkjunarvandamálunum við Búrfell í sambandi
við þær áætlanir sem gerðar höfðu verið. Edvigs Y. Kanavin, sem
veitti rannsókninni forstöðu, skrifaði grein um niðurstöður þeirra
félaga í tímaritið Fossekallen, 3. hefti sem kom út í september í
haust, en tímarit þetta er gefið út af norsku raforkumálaskrifstof-
unni. Hann segir þar m. a.:
„Etter det kjennskap vi har fátt til arten av den usedvanlig store
isproduksjon som foregár i Thjórsá, má det etter vár opfatning
foretas omfattende reguleringsarbeider sem en nödvendig del av
ethvert utbyggningsprosjekt í detta vassdraget, hvis en stabil kraft-
produksjon basert pá vannkraft skal kunne sikres. Et konvensjonelt
prosjekt vil mátte risikere á möte vanskeligheter av en störrelses-
orden som er ukjent i de aller fleste land. Jeg vil i det hele framheve
sterkt at Islands naturforhold pá mange máter er sá specifikke, at
det er farlig uten videre á overföre erfaringer eller principer fra
andre land. I den kommende vannkraftutbyggning og industriali-
sering av Iandet fár islændingene selv den störste uppgave, og grunn-
laget má lægges ved systematiske undersökelser og forskning.“
Norsku sérfræðingarnir telja þannig að mjög víðtæk miðlunar-
virki verð.i óhjákvæmileg ef tryggja eigi örugga orkuframleiðslu,
að öðrum kosti vofi yfir hætta á örðugleikum sem naumast eigi
nokkurn sinn líka annarsstaðar. í samræmi við þetta benda norsku
sérfræðingarnar á það sem lausn í skýrslu sem þeir hafa þegar af-
hent Sameinuðu þjóðunum, að ráðizt verði í miðlunarvirki svo sem
hér segir:
Gerð verði 30—40 metra há og mikil stífla fyrir neðan Sultar-
tanga, ein lægri stífla í Þjórsá og tvær lægri stíflur í Tungná og
ennfremur fyrirhleðslur út í ána frá báðum bökkum með 6—700
metra millibili n.iður að virkjunarstað.
Tillaga þessi er í samræmi við hugmyndir þær sem íslenzkir
verkfræðingar, sem athugað hafa málið, hafa einnig gert sér um
lausn þessa vanda. En framkvæmdir þessar munu ekki kosta undir
200 milljónum króna, en sú viðbót v.ið virkjunarkostnaðinn raskar
að sjálfsögðu öllum fyrri áætlunum um kostnaðarverð á raforku