Réttur - 01.01.1966, Blaðsíða 39
RÉTTUR
39
íslenzkt atv.innulíf fj ölbreyttara, taka upp nýjar atvinnugreinar og
efla útflutningsiðnaðinn, en á því sviði gætum við án efa fundið
íjölmörg verkefni sem við réðum við af eigin rammleik án þess að
hlíta forsjá erlendra auðfélaga. Eg minnist til að mynda athyglis-
verðrar greinar sem Asgeir Þorsteinsson verkfræðingur birti í
Morgunblaðinu fyrr á þessu ári um hugsanlega efnaiðnaðarfram-
leiðslu sem Islendingar réðu við. En rannsóknir á þeim sviðum hafa
verið vanræktar með öllu vegna þess að stjórnarvöldin hafa einblínt
á erlenda aðila sem ættu að leysa verkefnin í okkar stað. Þegar farið
er að treysta á erlenda forsjá um hin veigamestu atriði dregur þrótt
og þor úr landsmönnum; þess sjást þegar merki hvernig þessi af-
staða smitar út frá sér; nú þykir helzt ekki gerlegt að ráðast í
nokkra framkvæmd nema með erlendri þátttöku — allt niður í bjór-
bruggun. Hin fyrirhugaða alúmínbræðsla er risafyrirtæki á okkar
mælikvarða; ekki verða fundin dæmi um jafn umfangsmikla erlenda
fjárfestingu frá nokkru fullvalda ríki í víðri veröld, til samanburðar
þarf að leita uppi nýlendur og hálfnýlendur. En í kjölfarið munu
koma erlend ítök á flestum sviðum þar sem ábatavon er að finna;
komist þessi stefna í framkvæmd mun íslenzkum atvinnurekendum
fljótlega finnast þröngt fyrir dyrum — enda hlýtur ríkisstjórninni
að vera fullkunnugt um hina víðtæku andstöðu við málið meðal
atvinnurekenda í sjávarútvegi og fiskiðnaði, þeim atvinnurekstri
sem nú er undirstaða efnahagskerfisins.
Ég minntist á það í upphafí að ég teldi það mjög óeðlilegt að
málið kæmi til kasta alþingis á þann hátt sem ríkisstjórnin hefur
fyrirhugað, sem fullfrógenginn og undirritaður samningur við sviss-
neska alúmínhringinn. Fyrst ber að leggja sjálft vandamálið fyrir
alþingi Islendinga sem meginstefnu, sem grundvallarbreytingu frá
þeirri afstöðu sem verið hefur í gildi allt til þessa, og ræða það mól
gaumgæfilega með þjóðleg og efnahagsleg sjónarmið í fyrirrúmi.
Komist alþingi að þeirri niðurstöðu að breyta beri þeirri grund-
vallarstefnu sem nú er í gildi og gefa erlendu fjármagni rétt til at-
vinnurekstrar á íslandi, þá og þó fyrst er tímabært að leggja fyrir
alþingi þá framkvæmd slíkrar stefnubreytingar sem felst í samning-
unum við svissneska hringinn. Ég vil mjög eindregið skora á ríkis-
stjórnina að hafa þennan hátt á.