Réttur


Réttur - 01.01.1966, Page 54

Réttur - 01.01.1966, Page 54
EINAR OLGEIRSSON: Hugleiðing um hálfrar aldar reynslu íslenzkrar verklýðs- hreyfingar á nokkrum sviðum Hálf öld er liðin, síðan íslenzkir verkamenn skópu fyrstu varan- legu heildarsamtök sín á faglegu og pólitísku sviði í senn, er þeir þann 12. marz 1916 stofnuðu Alþýðusamband Islands, er nefndist Alþýðuflokkurinn, þegar um kosningar og önnur stjórnmálaafskipti var að ræða. Samtökin stóðu á grundvelli jafnaðarstefnunnar, — sósialismans. Það er hollt að horfa til haka á slíkum tímamótum og rifja upp hvað helzt má læra af hálfrar aldar reynslu, til þess að vera betur húinn í vegferöina næstu hálfa öld. Og veröur þó aðeins drepið á nokkuð af því helzta í stultri tímaritsgrein. I. Baráttan um sjálfstæði og forystuhlutverk verkalýðsins. Heimsstyrjöldin fyrri liafði eins og sú síðari mikil áhrif í þá átt að skerpa stéttabaráttuna og knýja verkalýðinn á sjó og landi til umhugsunar og aðgerða í hagsmuna- og frelsisbaráttu sinni. Háseta- verkfallið frá apríl-lokum til miðs maí 1916 varð einskonar eldskírn hins nýstofnaða Alþýðusambands. Forystustéttin, sem þá var innan verkalýðsins, — togarasjómennirnir, —- hafði fundið til máttar síns og sýnt vald sitt. Það má greina þrenna aðila við stofnun Alþýðusambands og AI- þýðuflokks: 1. Verkamenn á sjó og landi, er þegar höfðu myndað sín verka- lýðssamtök og jafnvel reynt landssamtök eins og Bárufélögin og Verkamannasambandið 1908. Þeim var og að verða ljós nauösyn

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.