Réttur - 01.01.1981, Side 8
þeirra bjóða frið og afvopnun, enda geri
hinir hið sama.
„Hernaðar- og stóriðjusamsteypan” í
Bandaríkjunum — sem Eisenhower for-
seti varaði þjóð sína við í kveðjuræðu
sinni — hugsar hinsvegar til stríðs sem
stórgróðafyrirtækis. (Það má bara ekki
ná til Bandaríkjanna.) Frá þessari klíku
stafar öll hætta á stórstyrjöld, kjarnorku-
stríði utan Bandaríkjanna. Við það
verða menn að fara að horfast í augu,
hvernig sem þeir hafa hugsað hingað til
— og Nato-ráðherrar að gera upp hug
sinn, hvort þeir ætla að gerast ráðbanar
íslendinga.
Norðurleið hel-
sprengjannaí ,,litla”
kjarnorkustríðið:
Kanada — Keflavík —
Þrándheimur
Herstjórn Bandaríkjanna skipar
„bandamönnum” sínum í Evrópu að
koma upp „meðaldrægum” kjarnorku-
sprengjum (Cruise Missiles og Pershing 2)
(þ.e.a.s. kjarnorkusprengjum, sem frá
Vestur-Evrópu ná inn yfir öll
Sovétríkin), svo og ,,nifteinda”-sprengj-
um, þ.e. kjarnorkusprengjum, sem
drepa alt lifandi með ógnarkvölum, en
eyðileggja aðeins nánasta umhverfi.
Vestur-Evrópuríkin eru treg að fórna
sér fyrir herrann í villta vestrinu. Sum
hafa neitað að koma upp slíkum sprengj-
um, en bandaríska hervaldið knýr á.
Norðmenn hafa látið undan einni
höfuðkröfu amerísku herkónganna. Það
Þrælabúðir í sykurrófuekrum Florida. Ofl 100 manns í
sama herbergi.
Úrslitastund?
Árið 1945 heimtaði Truman Banda-
ríkjaforseti, sá er múgmorðunum réði i
Hiroshima, að fá þrjár mikilvægar her-
stöðvar á íslandi (Keflavíkurflugvöll,
Hvalfjörð og Skerjafjörð) undir amerísk
yfirráð til 99 ára. Þá neitaði íslensk þjóð,
enn sjálfstæð í hugsun og verki.
Nú ætlar Bandaríkjastjórn landi og
þjóð vorri slíkt hlutverk í því stríði, er
hún undirbýr, að leitt geti til tortímingar
þjóðar vorrar. Það er krafist stórfelldra
hernaðarmannvirkja á Keflavíkurvelli, er
margfalda hernaðargildi hans.
En er ekki hætta á að Rússinn komi?
munu Nato-bjálfarnir íslensku segja.
Sovétþjóðirnar hugsa með hryllingi til
striðs. Þær fórnuðu 20miljónum manns-
lífa í síðasta striði til að leggja forinju
fasismans að velli og urðu að þola ger-
eyðingu stórs hluta lands síns. Og enginn
aðili þar græðir á stríði. Hergagnafram-
leiðsla rýrir þar lífskjörin. Og foringjar
8