Réttur


Réttur - 01.01.1982, Page 1

Réttur - 01.01.1982, Page 1
lettur 65. árgangur 1982 — 1. hefti Vá er fyrir dyrum! Haltu vöku þinni, islenska þjóö! Örn hins ameriska hervalds og auðvalds vokir sem hrægammur yfir landi voru. Það á að hremma hvern hluta þess á fætur öðrum eftir þörfum rán- fuglsins. Það á aö umhverfa okkar gamla íslandi — sem nú þegar gæti verið oss öllum „farsældar Frón — í banvæna drápsiöjustöð til árása á Evrópu. Þegar bandarlska hervaldið hefur sitt árásarstríö umhverfast hinar amerlsku „varnarstöðvar” I eldsvíti atomsprengjanna. Eitur geislavirkninn- ar eyðir þá jafnt íbúum lands vors sem fegurstu stööum þess. ..Vorvindar glaðir” ummyndast I dauðans og kvalanna ský. Þessa ógn er Bandaríkjaher og erindrekar hans að kalla yfir þjóðina þegar viö höfum þraukað í þessu landi í þúsund ár, þolað sex alda nýlendu kúgun, — og samt gert þjóð vora að menningarlegu stórveldi og værum nú færir um að skapa hér fagurt mannlíf — án fátæktar og hörmungar fortlðarinnar, ef vér aðeins fengjum að vera I friði, sjálfstæðir I landi voru. — Þessa ógæfu hernáms og stríðs verður að afnema og hindra. j 2rí78 0 ! iSLAÍIDS

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.